HÚSASJÁ

Móstekkur 6C

03-0201 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

134 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2023

Byggingarár

3500 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



380 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

598.054 kr/m²

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Móstekkur 6 íbúð 201

Um er að ræða fallegt fjórbýlishús á tveimur hæðum rétt við Stekkjarskóla á Selfossi.

Húsið er staðsteypt og klætt að utan með litaðri álklæðningu, gluggar og hurðir eru úr áli og þak klætt með tvöföldum tjörudúk.

Að innan skiptast eignirnar í anddyri, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og  þvottahús/geymslu sem eru í rúmgóðu rými.

Nánari lýsing:

Fallegar innréttingar eru í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi, fataskápar eru í öllum herbergjum sem og forstofu. Loft eru klædd með hljóðdúk og eru innfeld ljós í loftum.

Í anddyri eru tvöfaldir fataskápar.

Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og hluti veggja en þar er stór gólfsturta með innbyggðum tækjum og falleg innrétting.

Stórir og bjartir gluggar eru í íbúðunum sem gefa mikla birtu og gott útsýni. Úr stofu er útgengt á góa verönd.

Í eldhúsi er smekkleg innrétting með stórri eyju og góðu vinnuplássi.

Þvottahús / geymsla er með flísum á gólfi, góð innrétting er í þvottahúsi en í rýminu er hurð út á framlóð og baklóð.

Gólfhiti er í öllum íbúðum.

Parket er á stofu, eldhúsi og herbergjum og flísar á baðherbergi og þvottahúsi/geymslu.

Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum.

Skipulagsgjald er ógreitt og greiðist af kaupanda.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.

S: 482-4800 eða á arborgir@arborgir.is

Kort af Móstekkur 6C

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu