HÚSASJÁ

Móstekkur 2B

01-0102 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

133 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2023

Byggingarár

3500 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



471 dagar á sölu

sell

77.900.000 kr

587.925 kr/m²

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Móstekkur 2, íbúð 102

Um er að ræða fallegt fjórbýlishús á tveimur hæðum rétt við Stekkjarskóla á Selfossi.

Húsið er staðsteypt og klætt að utan með litaðri álklæðningu, gluggar og hurðir eru úr áli og þak klætt með tvöföldum tjörudúk.

Að innan skiptast eignirnar í anddyri, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og  þvottahús/geymslu sem eru í rúmgóðu rými.

Nánari lýsing:

Fallegar innréttingar eru í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi, fataskápar eru í öllum herbergjum sem og forstofu. Loft eru klædd með hljóðdúk og eru innfeld ljós í loftum.

Í anddyri eru tvöfaldir fataskápar.

Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og hluti veggja en þar er stór gólfsturta með innbyggðum tækjum og falleg innrétting.

Stórir og bjartir gluggar eru í íbúðunum sem gefa mikla birtu og gott útsýni. Úr stofu er útgengt á góa verönd.

Í eldhúsi er smekkleg innrétting með stórri eyju og góðu vinnuplássi.

Þvottahús / geymsla er með flísum á gólfi, góð innrétting er í þvottahúsi en í rýminu er hurð út á framlóð og baklóð.

Gólfhiti er í öllum íbúðum.

Parket er á stofu, eldhúsi og herbergjum og flísar á baðherbergi og þvottahúsi/geymslu.

Hver íbúð er með stæði í séreign og gert er ráð fyrir að hægt sé að setja hleðslustöð við merkt stæði fyrir hverja íbúð, lagnir komnar að rafmagnstöflu.

Skipulagsgjald er ógreitt og greiðst af kaupanda.

Íbúðir á jarðhæð 132,5fm verð: 77,9 milljónir

Íbúðir á efri hæð 133,6fm verð: 79.9 milljónir

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.

S: 482-4800 eða á arborgir@arborgir.is

Kort af Móstekkur 2B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu