HÚSASJÁ

Heiðarvegur 12

01-0305 · 900 Vestmannaeyjum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

33 m²

Stærð

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1946

Byggingarár

375 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir



12 dagar á sölu

sell

34.900.000 kr

1.048.048 kr/m²

Eignin er laus við kaupsamning og selst með eða án innbús.

Heimaey fasteignasala kynnir sérhannaða, og eina glæsilegustu  stúdíóíbúð sem sést hefur.  Íbúðin er hönnuð innanhúss af Maríu Pétursdóttir og hver einasti fermeter fullnýttur.

Eignin er 33,3 m2 að stærð þ.m.t. sérgeymsla í kjallara 2,2 m2, og er byggð úr steini árin 2023 og 2024.

Eignin er á 3ju / efstu hæð í 10 íbúða fjölbýlishúsi í hjarta miðbæjarins.  Einstök sérhönnuð eign á frábærum stað með frábæru útsýni.

Inngangur í íbúðina er af sameiginlegum gangi þar sem eru lyfta og stigi.

Eldhús, stofa og svefnrými eru í einu stóru alrými með útgang á suðursvalir.  Glæsileg eldhúsinnrétting og gott skáparými. Innbyggð eldhústæki, ísskápur/frystir og uppvöskunarvél fylgja með.

Snyrtingin er með glæsilegri innréttingu, walk-in sturtu með reyklituðu gleri, upphengdu salerni, innfelldri handlaug, sérvöldum blöndunartækjum og gert ráð fyrir þvottavél eða sambyggðri þvottavél/þurrkara. Gólf eru flísalögð með fallegum gólfflísum og gólfhiti er í allri íbúðinni.

Lýsingin er sérhönnuð þar sem er blandað saman innfelldri lýsingu og fallegum loftljósum / hangandi ljósum.

Hægt er að semja um kaup á innbúi.

Byggingaraðilii er Steini og Olli byggingaverktakar ehf – sem er rúmlega 30 ára rótgróið fyrirtæki með mikla reynslu í byggingu vel útbúinna íbúða hér í Eyjum.  Einstakt handverk og allt til fyrirmyndar.

Íbúðin var tekin í notkun í lok maí 2025 og er því nánast afhent eins og ný eign.

Einstakt útsýni af suðursvölum .  Góð bílastæði sunnan eignar.

Sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Frábær fyrsta eign – hægt að nýta séreignarsparnað sem hluta útborgunar

Tilvalin orlofsíbúð eða fyrstu kaup.

Kostur að geta samið um kaup á innbúi

Valkvæð staðsetning sjónvarps, tengi bæði á austur- og vesturvegg

SJÓN ER SÖGU RÍKARI.

Nánari upplýsingar og skoðanir vinsamlegast hafið samband  Guðjón Hjörleifsson löggiltan fasteignasal s. 895-2548 eða gh@heimaey.net

Kort af Heiðarvegur 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu