Brúarfljót 3B
02-0113 · 270 Mosfellsbæ



37 dagar á sölu
44.900.000 kr
546.229 kr/m²
NADIA KATRÍN OG DOMUSNOVA KYNNA:
Nýlegt 82,2fm atvinnuhúsnæði með einni innkeyrsluhurð og tveimur inngönguhurðum. Önnur er á hliðinni og hin að baka til. Húsið er endabil fjær götu merkt 02 0113. Nýlegur kælir er í eigninni og þvottalína fyrir iðnaðareldhús sem getur fylgt með. Innst í rýminu er rúmgóð snyrting með salerni og skolvaski.
Alment:
Húsin eru límtréshús frá LímtréVírnet ehf., klætt steinullar-yleiningum.
Innkeyrsluhurð er 3,5 m. á hæð og 4,0 m. á breidd. Lofthæð lægst 3,9 m. og hæst 6,0 m.
Bílaplan verður malbikað með niðurföllum og olíuskiljum.
Húsin er byggð á steinsteyptum undirstoðum. Gólf eru steypt og vélslípuð. Burðarvirki veggja og þaks er límtré.
Hurðir og gluggar eru úr hvítu PVC
Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Nadia Katrín Banine löggiltur fasteignasali / s.692 5002 / nadia@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir












