HÚSASJÁ

Sólbakki 2C

01-0103 · 740 Neskaupstað

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

78 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

1515 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



189 dagar á sölu

sell

50.250.000 kr

644.231 kr/m²

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lf-fasteignasala.is kynna:

Sólbakki 2, Neskaupstað íbúð á neðri hæð.

ÍBÚÐIN UPPFYLLIR SKILYRÐI HLUTDEILDARLÁNA EN EINNIG GETA SELJENDUR LÁNAÐ HLUTA ÚTBORGUNAR  SAMKVÆMT NÁNARA SAMKOMULAGI.

Vönduð og þægileg, fullfrágengin íbúð.

Íbúðin er 78,0 m², þar af er geymsla 3,6 m²

íbúð með sérinngangi og góðu aðgengi.

Íbúðin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í sama rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með rúmgóðri þvottaaðtöðu og geymslu á geymslugangi.

Sameignileg hjóla- og vagnageymsla með sér inngangi.

Forstofan er rúmgóð með fataskáp, flísar á gólfi.

Alrýmið er rúmgott með vandaðri eldhúsinnréttingu frá Brúnás og eyju með helluborði með viftu í.

Hægt er að hafa ljós og eða viftu fyrir ofan helluborðið.

Bökunarofn er í þægilegri vinnuhæð.

Stór svartur stálvaskur er í innréttingunni

Steypt verönd er framan við stofuna og er svalahurðin vönduð og hægt að læsa henni utanfrá og opna og læsa með lykli.

Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og einnig innbyggðri uppþvottavél.

Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum og parketi á gólfum.

Baðherbergi með flísum á gólfi, góð innrétting og speglaskápur.

Flísalagt sturtuhorn.

Þvottahús er hluti af baðherberginu, þar er innrétting fyrir 2 tæki (þvottavél og þurrkara).

Sér geymsla ásamt vagna- og hjólageymslu er á geymslugangi og er inngangur beint í hjóla- og vagnageymsluna að sunnanverðu og einnig inn á ganginn að norðanverðu.

Brúnas innréttingum með eikaráferð og hvítum efri skápum er í eldhúsi.

Íbúðin er kynnt með rafmagnsofnum.

Í forstofu og baðherbergi er rafmagnsgólfhiti.

Íbúðin er fullbúin og er gott parket á alrými og herbergjum en flísar á öðrum gólfum innan íbúðarinnar.

Hljóðdúkur í loftum íbúðar og gefur hann góða hljóðvist.

Reykskynjarar, slökkvitæki og læstur lyfjaskápur fylgja íbúðinni.

Húsið er úr forsteyptum einingum.

Gólfplötur eru staðsteyptar. Þak er hefðbundið tvíhalla þak með bárujárni.

Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri.

Lóðin er fullfrágengin með grasi og hellum.

Aðgengi að húsinu er malbikað ásamt bílastæðum.

Kort af Sólbakki 2C

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð