HÚSASJÁ

Álhella 11J

01-0110 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

124 m²

Stærð

2

Herbergi

2025

Byggingarár

8334 m²

Lóð



516 dagar á sölu

sell

48.900.000 kr

395.951 kr/m²

RE/MAX, Bjarný Björg Arnórsdóttir Lgf & Sveinn Gíslason Lgf kynna:

Vandað og fullbúið atvinnuhúsnæði á góðum stað í Hafnafirði. Húsið er steypt og er klætt samlokueiningum á útveggjum og þaki. Húsið skiptist í 10 séreiningabil og eitt sameiginlegt inntaksrými. Bilin eru skráð sem geymsluhús með möguleika á að breyta í atvinnuhúsnæði.

Samkvæmt deiluskipulagi er gert ráð fyrir grófum iðnaði á svæðinu.

Nánari upplýsingar gefur :

Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is

Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali sími 859-5559 / sveinn@remax.is

Bilin eru sértaklega breið með mikilli lofthæð og hönnuð með það í huga að stórar vinnuvélar komist inn. Hver eining hefur skilgreint séreignasvæði auk sameignar á lóð skv. byggingalýsingu í samþykktum teikningum. Bilin eru með mikilli lofthæð, 7,5m í mæni, 18,5 m djúpt og 7,150m breitt (stærri bilini) 9m djúpt og 7,150m breitt (minni bilin). Innkeyrsluhurðar eru 5x5 m á hæð og 4x4m með gönguhurð að framan.

Nánari lýsing:

- Bilið er 123,5 fm. Grunnflötur er 65,9 fm og milliloft 57,6 fm.

- Húsið er uppsteypt klætt með samlokueiningum frá Límtré Vírnet.

- Þak er límtrésþak klætt samlokueiningum frá Límtré/Vírnet.

- Gluggar og gönguhurðir eru timbur/álgluggar frá Gluggatækni. Gluggar eru glerjaðir með tvöföldu verksmiðjugleri.(K-gler)

- Aksturshurðir er samlokuhurðir frá Límtré/Vírnet. Stærð innkeyrsluhurða er 5x5 m og 4x4 m á hæð.

- Svalir eru steyptar með slípuðu yfirborði. Svalahandrið úr galvanhúðuðu stáli verður uppkomið og frágengið.

- Olíugildra verður fullfrágengin og tengd fráveitukerfi bæjarins.

-  Lóð verður skilað jafnaðri og malbikaðri, með kantsteini og gróðri. Niðurföll í lóð verða fullfrágengin og tengd fráveitu bæjarins. Athygli er vakin á að lóðin er að hluta til í séreign hvers eignarhluta og að hluta til sameign allra, s.b.r. eignaskiptasamning.

-  Rafmagntafla í séreign verður komin en raflagnir að öðru ekki. Þó verður raflögn komin í salerni ásamt ljósakúpli. Lágmarks vinnulýsing í aðalrými. Rafmagnstafla skilast fullfrágengin skv. Teikningu og tenglar við töflu fyrir 32A,16A  og tveir 13A.

- Innihurðir eru yfirfeldar eikarhurðir frá Birgisson (eða samb.), uppkomnar og fullfrágengnar.

- Stigi milli hæða er léttur stigi úr límtré og stáli.

- Samkvæmt deiluskipulagi þá má vera með iðnað í flokki B3 í Álhellu 11.

Sjá nánar skilalýsingu byggingaraðila.

Skipulagsgjald:

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati. ATH. VSK – kvöð er á húsnæðinu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Álhella 11J

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14