HÚSASJÁ

Jöfursbás 5D

01-0404 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
58 myndir

96 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

3449 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla



32 dagar á sölu

sell

98.900.000 kr

1.025.934 kr/m²

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega nýlega 3. herbergja 96,4 m2 endaíbúð með sjávarútsýni og 35,5 m2 þaksvölum til suð-vesturs á fjórðu hæð, þar af geymsla 8,4 m2 ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin er skemmtilega hönnuð með tveimur góðum svefnherbergjum. Gólfhiti í öllum gólfum.

Innréttingar sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

* sjávarútsýni

* aukin lofthæð

* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.

* vönduð gólfefni

* gólfhiti

* gólfsíðir gluggar

* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar

* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu

* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi

Nánari lýsing íbúðar

Forstofa með stórum fataskáp

Eldhús með eyju, góðu skápaplássi og innbyggð ísskápur, frystir og uppþvottavél.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum.

Stofa með góðum gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni til sjávar, útgengi út á 35,5 m2 flísalagðar þaksvalir með glerhandrið og óbeinni lýsingu.

Baðherbergið er flísalagt með 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.

Hjónaherbergið er rúmgott með vönduðum fataskáp.

Svefnherbergi rúmgott með fataskáp

Geymsla merkt íbúðinni í kjallara

Hjóla- og vagnageymsla í sameign

Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl

Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Hverfið:

Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.

Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Kort af Jöfursbás 5D

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu