HÚSASJÁ

Jöfursbás 5D

01-0403 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

115 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

3449 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



644 dagar á sölu

sell

114.900.000 kr

997.396 kr/m²

NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir Jöfursbás 5A, Reykjavík -- íbúð 0403.  3ja-4ra herbergja endaíbúð íbúð 115,2fm. á fjórðu hæð, þar af geymsla 8,5fm. (merkt 0013).  Íbúðinni fylgir stæði merkt B038 í lokuðum bílakjallara.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með tveimur góðum svefnherbergjum og möguleiki á þriðja herberginu.  Sér-þvottahús innan íbúðar.  Gólfhiti í öllum gólfum íbúðar . 72fm. flísalagðar þaksvalir með óbeinni lýsingu og gler handriði út frá stofu. Sjávarútsýni.

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

* sjávarútsýni

* aukin lofthæð

* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.

* vönduð gólfefni

* gólfhiti

* gólfsíðir gluggar

* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar

* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu

* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi

Nánari lýsing íbúðar

Forstofa rúmgóð með stórum fataskáp

Eldhús með eyju, góðu skápaplássi og innbyggð ísskápur, frystir og uppþvottavél.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum.

Stofa og borðstofa með góðum gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni til sjávar.  Mögulegt að gera herbergi innaf stofu.

Baðherbergið  flísalögð með  60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.

Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og flísalagt gólf.

Hjónaherbergi er rúmgott með vönduðum fataskáp.

Svefnherbergi rúmgott með fataskáp

Þaksvalir 72 fm. flísalagðar með glerhandrið og óbeinni lýsingu.  Engin útigeymsla.

Geymsla merkt íbúðinni í kjallara

Hjóla- og vagnageymsla í sameign

Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl

Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.

Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi.

Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is

Íbúðirnar í húsinu eru samtals 26 talsins í tveimur stigahúsum, mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 55 fm-180 fm.  Næg stæði fyrir utan hús.

Hverfið:

Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.

Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.

Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Kort af Jöfursbás 5D

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð