HÚSASJÁ

Bygggarðar 1

01-0108 · 170 Seltjarnarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

82 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

1838 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



63 dagar á sölu

sell

87.900.000 kr

1.069.343 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Bygggarðar 1 íbúð 108. Vönduð 82,2 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérafnotareit og stæði í bílageymslu. Íbúðin er parketlögð. ATH myndir eru tölvuteiknaðar og eru ekki af þessari íbúð.

Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi með skápum, baðherbergi með þvottaaðstöðu og alrými sem skiptist í stofu og eldhús. Sér geymsla er í kjallara sem er skráð 9,2 fm. Íbúðin er fullbúin með gólfefnum. Vandaðar innréttingum frá Selós og steinn á borðum. Flísalagt baðherbergi með þvottaaðstöðu og sturtu. Íbúðin er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Hiti er í gólfum og hljóðdúkur í hluta lofts. Eitt bílastæði er í kjallara og eru einnig sameiginleg bílastæði á lóð.

Nánari lýsing:

Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts en gengur og gerist til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í íbúðinni og einnig er vélræn loftskipti sem tryggja aukin loftgæði. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð frá Selós. Skápar eru spónlagðir með eik og bæsaðir í bland við sprautulakkaðar einingar. Að innan eru skápar úr slitsterku melamin efni. Vönduð heimilistæki sem flest eru frá MIELE. Kæli-/frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttinguna og spanhelluborð með innbyggðum gufugleypi. Dekton – Laos steinborðplötur eru í eldhúsi, einnig er sama plata á milli borðplötu og efri skápa. Bað-og þvottahúsinnréttingar eru sérsmíðaðar, vaskaskápar eru spónlagðir með eik og bæsaðir. Jafnvægisstillt loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í íbúðinni. Sérstök hljóðísogsplata bætir hljóðvist. Húsið er staðsteypt einangrað og klætt að utan með svartri Dekton steinklæðningu, koparlitaðri álkasettuklæðningu og Bambusklæðingu.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Bygggarðar 1

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð