HÚSASJÁ

Vorbraut 49

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

230 m²

Stærð

5

Herbergi

430 m²

Lóð

Bílskúr

Þvottahús



108 dagar á sölu

sell

198.000.000 kr

862.745 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Einstaklega glæsilegt og vel hannað endaraðhús með stórbrotnu útsýni við Vorbraut 41, í suðurhlíð Hnoðraholts í Garðabæ. Eignin er skráð 229,5 fm og skiptist í þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol/auka svefnherbergi, tvö baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, anddyri og bílskúr. Frá stofu er gengið út á 24 fm svalir með glæsilegu útsýni.

*ATH -  Eignin skilast tilbúin til innréttinga skv. skilalýsingu en hægt er að fá húsið lengra komið í samstarfi við byggingaraðila*

Allar nánari upplýsingar veita:

Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is

Sigurður Gunnlausson, löggiltur fasteignasali, í síma 898-6106 eða með tölvupósti: sigurdur@fstorg.is

Heimasíða verkefnisins: VORBRAUT.IS

Nánari lýsing

Við Vorbraut 41–51, í suðurhlíð Hnorðaholts í Garðabæ, eru nú í byggingu sex einstaklega glæsileg raðhús á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir golfvelli GKG og Vífilsstaðavatn í Heiðmörk. Húsunum er skilað frágengnum að utan og tilbúnum til innréttinga að innan. Lóðum er skilað frágengnum að framanverðu en grófjöfnuðum að öðru leyti. Hægt er að fá húsið lengra komið í samstarfi við byggingaraðila með möguleika á vali milli tveggja mjög veglegra innréttingarpakka frá Birgisson. Endilega hafið samband við fasteignasala fyrir frekari upplýsingar.

Arkitektur

Raðhúsin við Vorbraut 41-51 voru hönnuð af FORMER arkitektum. Húsin voru sérstaklega hönnuð með sólarátt og birtuskilyrði í huga og skipulagið unnið út frá einstakri staðsetningu í suðurhlíð Hnoðraholts svo að íbúar allra húsanna geti notið stórbrotins útsýnis yfir golfvöll og náttúruparadísina Heiðmörk. Einkar glæsilegir innigarðar gefa húsunum sérstakan karakter með sterka tengingu við náttúruna og ásamt efnisvali er sem hún flæði inn í húsin.

Innanhússhönnun

Innanhússhönnun var í höndum M/STUDIO Reykjavík. Lagt var upp með tímalausa hönnun og samspil við náttúru þar sem úthugsað innanhússskipulag, skýrar línur og gott flæði er einkennandi . Þá var áhersla lögð á hágæða efni þar sem ekkert var til sparað til þess að hafa húsin sem glæsilegust.

Hverfið

Hnoðraholt í Garðabæ er einstaklega vel staðsett hverfi með víðáttumiklu útsýni í allar áttir og stórbrotinni náttúrufegurð. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og fjölbreytta íþróttaiðkun, til dæmis í íþróttahúsinu Miðgarði. Þá er einstakt aðgengi að útivistarsvæðum Garðabæjar, svo sem Heiðmörk, Vífilsstaðavatni og golfvöllum GKG, sem öll eru í göngufæri.

Byggingaraðili

Vangur er fasteignaþróunarfélag með það að markmiði að þróa og byggja vandaðar og vel hannaðar byggingar þar sem gæði, notagildi og fagurfræði fara saman. Gráhyrna er aðalverktaki Vorbrautar 41-51 en félagið er traust verktakafyrirtæki sem hefur verið starfandi á byggingarmarkaði í yfir 10 ár við góðan orðstír.

Kort af Vorbraut 49

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20
Vorbraut 49, 01-0101 | Húsasjá