HÚSASJÁ

Stekkholt 55

Lóð · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

2026

Byggingarár

446 m²

Lóð

Þvottahús



10 dagar á sölu

sell

179.900.000 kr

786.620 kr/m²

Betri Stofan og Guðbjörg Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali kynna:  Einstaklega  vel skipulagt endaraðhús með innbyggðum bílskúr, við Stekkholt 55, í Hnoðraholti, Garðabæ. Eignin er skráð 228,3 fm og skiptist í fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, 3 baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, anddyri og bílskúr. Frá stofu er gengið út suðaustur svalir með glæsilegu útsýni.

Eignin skilast tilbúin til innréttinga að innan skv. skilalýsingu. Að utan skilast húsin frágengin, einangruð að utan og klædd álklæðningu, Velfaq ál/tré gluggar.

Lóð skilast grófjöfnuð samkvæmt skilalýsingu.

Nálgist skilalýsingu og nánari upplýsingar hér:

Guðbjörg Guðmundsdóttir í síma 8995533  gudbjorg@betristofan.is

Nánari lýsing:

Stekkholt 55 er endaraðhús í nýrri fjögurra húsa raðhúsalengju sem nú er í byggingu í Hnoðraholti Garðabæ. Frá götu er aðkoma að efri hæð hússins þar er innbyggður bílskúr, stórt anddyri, stofa, eldhús, borðstofa og baðherbergi. Úr stofu er gengið út á góðar svalir til suðausturs.

Á neðri hæð er hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi, þrjú rúmgóð barnaherbergi, öll yfir 10fm., sjónvarpshol, rúmgott baðherbergi þar sem gert er þvottaaðstöðu og skolvaski.  Af gangi neðri hæðar er útgengt í garð.

að innan skilast húsið tilbúið til innréttinga, veggir spartslaðir og grunnaðir, vinnurafmagn í herbergjum, gólfhitalagnir tilbúnar fyrir stýrikerfi, Að utan skilast húsið frágengið, einangrað og klætt álklæðningu.

Um er ræða glæsileg og vel skipulögð raðhús í nýju og skemmtilegu hverfi í Garðabæ. Hnoðraholt er vel staðsett nýtt hverfi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu og gott aðgengi er að útivistasvæðum Garðabæjar svo sem heiðmörk, Vífilstaðavatni og golfvelli GKG.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Stekkholt 55

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16
Stekkholt 55, Lóð | Húsasjá