HÚSASJÁ

Skerpluholt 5

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

240 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2024

Byggingarár

665 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



31 dagar á sölu

sell

239.500.000 kr

997.917 kr/m²

Nýtt einbýlishús til sölu á Hnoðraholti. Húsið er efst á hæðinni, frábær staðsetning í miðju höfuðborgarsvæðisins. Húsið er á einni hæð með innbyggðum bílskúr, aukin lofthæð í húsinu, stórt alrými, 3 svefnherbergi auk sjónvarpsskála. Lóð er skilað ófrágenginni svo kaupandi geti mótað hana að sínum vilja.

Ekki verður um opið hús að ræða og vinsamlega bókið skoðun hjá arni@domusnova.is eða í síma 6634290.

Gengið inn að sunnan, komið inní forstofu og þar er innangengt í bílskúr. Alrými stofu og eldhúss á vinstri hönd. Gangur inn eftir húsi í miðju, geymsla strax til hægri og þvottahús þar næst, sjónvarpshol, tvö herbergi á hægri hönd og skrifstofa/barnaherbergi í enda gangsins. Vinstra megin gangs er hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi samtals tæplega 28fm. Flísar á gólfum eru frá Parka í öllum flisalögðum rýmum. Lóðin er 665 fm og er hún ófrágengin. Stutt er á stofnæðar og þjónustu, golfvöllur og íþróttaaðstaða steinsnar í burtu sem og verslanir og önnur þjónusta. Salarhæð í alrými hæst 4,2m en í öðrum rýmum 3,0m.

Stofa og eldhús eru í alrými með mjög mikla lofthæð (hæst 4,2m), innrétting og flísar eru frá Parka, stór eyja, bjart og fallegt rými. Lökkuð steypa í vegg sem skilur rýmið frá gangi og forstofu. Loftdúkur og ull í lofti sem gerir mjög góða hljóðvist í rýminu.

Sjónvarpshol er innst á gangi, flísar á gólfi gangs og sjónvarpshols.

Hjónaherbergi með sér-baðherbergi, með opinni sturtu, og fataherbergi innaf, mjög rúmgott herbergi stærð um 28fm samtals. Útgengt er á lóð úr herberginu á pall með heitum potti skv. teikningu (ógert).

Tvö góð herbergi með fataskápum, flísar á gólfum.

Vinnustofa/skrifstofa með flísum á gólfi.

Baðhergergi með opinni sturtu (walk-in), flísalagt í hólf og gólf.

Geymsla út frá gangi sem og þvottahús með góðri innréttingu.

Þvottahús með góðri innréttingu.

Bílskúr sem innangengt er í úr íbúð, er mjög rúmgóður, 37,7fm að stærð með rafmagnshurðaropnun, hillur í enda fylgja.

Lóð er ófrágengin.

Mjög góð ný eign á frábærum stað í miðju höfuðborgarsvæðisins, stutt í allar áttir og á stofnbrautir. Útivistarsvæði í næsta nágrenni s.s. Vífilsstaðavatn og Elliðavatn og Elliðaárdalur. Stutt á golfvöll og íþróttahús og aðra þjónustu.

Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veita og skoðanir bókaðar hjá:

Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Skerpluholt 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45