HÚSASJÁ

Nesflói 1

01-0104 · 300 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
8 myndir

169 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

2946 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður



638 dagar á sölu

sell

69.700.000 kr

411.452 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Til sölu atvinnuhúsnæði við Nesflóa 1, Akranesi.

Fjárfestingatækifæri - Miklar leigutekjur!

Um er að ræða 169,4 fm atvinnurými (séreign 104) í nýlegu atvinnuhúsi í Grænum iðngörðum á Akranesi.

Nánari upplýsingar veita:

Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is

Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Húsið er byggt á steyptum grunni með stálburðarvirki og ytra byrði úr yleiningum. Rýmið er hluti af húsi sem samanstendur af 7 séreignarhlutum og sameign með inntaksrými.

Innra skipulag og frágangur:

Milliloft er fullbúið með snyrtingu, parketlögðu gólfi og eldhúsinnréttingu. Háir gluggar í þakbroti veita góða dagsbirtu.

Lóð og aðkoma:

Lóð er fullfrágengin og malbikuð. Svæðið er afgirt með girðingu og  símastýrðu hliði. Merkt og upphituð bílastæði eru fyrir framan húsið. Aðgangsstýringar, lyklalaust aðgengi og öryggismyndavélar eru til staðar.

Leigustaða:

Rýmið er í útleigu. Leigutekjur eru mjög góðar. Sala miðast við að kaupandi taki við leigusamningi við afhendingu.

Skilalýsing frá seljanda

Húsið er byggt á einangruðum sökkli og botnplötu úr járnbentri steinsteypu. Útveggir eru úr stáli með yleiningum. Þak er fullfrágengið með 150 mm einangrun og þakdúk með UV-vörn. Þakniðurföll eru tengd fráveitu og blágrænum ofanvatnslausnum.

Milliloft er skilað fullbúnu með snyrtingu, parketlögðu gólfi og eldhúsinnréttingu. Lóð er malbikuð og afgirt. Rafstýrt og símastýrt hlið er inn á lóð og gönguhurð fyrir gangandi.

Gjöld og skilmálar

Seljandi greiðir öll lóðargjöld til bæjarins og heimæðagjöld vegna vatns og rafmagns. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.

Áhvílandi er á eigninni virðisaukaskattskvöð og miðast sala við að kaupandi yfirtaki kvöðina.

Allar upplýsingar í söluyfirliti eru fengnar frá seljanda og úr opinberum gögnum.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Nesflói 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu