Dalsmúli 1
04-0701 · 108 Reykjavík



338 dagar á sölu
285.000.000 kr
1.561.644 kr/m²
Eignamiðlun kynnir:
Stórglæsileg 213,5 fm fjögurra herbergja endaíbúð á Orkureitnum. Svíta með sérbaðherbergi og fataherbergi. Gólfhiti, gólfsíðir gluggar og aukin lofthæð. Stórar þaksvalir í norður og vestur, með heitum potti og möguleika á saunu. Stórfenglegt útsýni, sjón er sögu ríkari. Bílskúr í bílakjallara. Sannkölluð lúxusíbúð í sérflokki.
ALLAR UPPLÝSINGAR GEFUR: Kári Sighvatsson, lögfr. og löggiltur fasteignasali í síma 8998815, kari@eignamidlun.is - bókið skoðun!
*** Sækja söluyfirlit ***
Orkureiturinn.is
Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 701 við Dalsmúla 1, 108 Reykjavík, F2529917 á Orkureit. 4 herbergja íbúð á 7. og efstu hæð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 182,5 fm, þar af er íbúðarrými 166 fm og sérgeymsla er 16,5 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í alrými, hjónasvítu með fataherbergi og sérbaðherbergi, tvö svefnherbergi (eða svefnherbergi og sjónvarpsstofu), baðherbergi og sérþvottahús. Tvennar svalir, annars vegar stórar þaksvalir / þakgarður (48 fm) sem útgengt er á úr stofu og frá gangi, með stórfenglegu fjalla- og sjávarútsýni. Hins vegar svalir (5,2 fm) sem útgengt er á úr svefnherbergi með útsýni yfir glæsilegan inngarð. Íbúðin er fullbúin með fallegu parketi, hljóðdúk í lofti, lýsingu og vönduðum tækjum í eldhúsi.
Sérgeymsla (16,5 fm) er í kjallara hússins. Þá fylgir íbúðinni jafnframt 31 fm bílskúr í bílakjallara.
Nánar um Orkureitinn:
Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni.
Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Kerfið endurvinnur varma upp að 85%, nýtir varma úr útsogslofti og hitar ferskt loft sem dælt er inn. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella. Hægt er að stýra kerfinu á bæði einfaldan máta á vegg eða með appi í snjallsíma.
Hönnun: Rut Kára innanhússarkitekt stýrir fágaðri hönnun innréttinga íbúða ásamt því að leggja línuna fyrir öll sameiginleg rými svo úr verður heildarmynd byggingar sem er engu lík. Rut Kára hefur lag á því að skapa heim sem við viljum búa í.
Framtíðarheimili á Orkureitnum
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“. Jafnframt er stefnt að því að allar íbúðir á reitnum verði Svansvottaðar.
Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.
Nánari upplýsingar gefa löggiltir fasteignasalar Eignamiðlunar.
Kári Sighvatsson lögg fs sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Þórarinn M. Friðgeirsson lögg fs sími 899-1882, thorarinn@eignamidlun.is
Gunnar Bergmann Jónsson lögg fs sími 839-1600, gunnarbergmann@eignamidlun.is
Ólafur H Guðgeirsson lögg fs sími 663-2508, olafur@eignamidlun.is
Oddný María Kristinsdóttir lögg fs sími 777-3711, oddny@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir, lögg fs, sími 649-3868, lilja@eignamidlun.is
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson lögg fs sími 864-5464, gudlaugur@eignamidlun.is***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna







































