HÚSASJÁ

Desjamýri 13D

01-0104 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

291 m²

Stærð

2024

Byggingarár

7056 m²

Lóð

Sérinngangur



589 dagar á sölu

sell

114.900.000 kr

394.710 kr/m²

Pétur Ásgeirsson og Guðmundur Júlíusson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Nýtt glæsilegt hús, atvinnuhúsnæði við Desjamýri 13  bil merkt 104.  Sérafnotareitur er fyrir fyrir framan bilið.

Eignin telur 291,1 m2, þar af 101 m2 milliloft, og því fylgir 280,6 m2 sérafnotareitur.Tvennar innkeyrsluhurðar eru á bilinu. VSK kvöð er á húsnæðinu sem kaupandi yfirltekur.

** Tvær innkeyrsluhurðar.

** Milliloft sem telur 101 fm.

** afhent við kaupsamning.

Frágangur utanhúss:

Húsið er byggt á 1800 m2 grunnfleti og skiptist í 10 atvinnubil. Húsið er byggt á steyptri vélslípaðri botnplötu, ómeðhöndluð. Burðarvirki úr húss er úr límtréi, milliveggir eru samlokueiningar með steinull, þakvirki er með límtrésbitum áklætt með pir einingum.

Útveggir áklæddir pir einingum. Rúmgóðar innkeyrsluhurðir ( 4,5 á hæð og 4,0m á breidd ) með gluggum og rafmagnsopnun, ásamt inngangshurð. Plan verður malbikað, girðing verður á lóðamörkum og rafmagnshlið við aðkomu lóðar.

Frágangur innanhúss:

Millilloft með stiga og handriði úr timbri. Innra rými er hvít stálklæðning. Ofnar í hverju bili samkvæmt teikningu. Vegghæð útveggs er 5,8 og mænishæð 9,1m. Rafmagnstafla og þriggja fasa tengill, rafmagn er utanáliggjandi samkvæmt teikningu, vinnulýsing í rýminu. Rýminn afhendast með salerni og handlaug. Gólfniðurfall frágengið. Brunavarnir: Tvær óháðar flóttaleiðir eru í hverju bili, ásamt tveimur óháðum flóttaleiðum af milligólf. Endabil eru með flóttaleið út á svalir. Viðurkennt númerað brunaviðvörunarkerfi verður í öllu húsinu skv. ÍST EN 54 og reglum HMS.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is og Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Desjamýri 13D

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð