HÚSASJÁ

Laugavegur 168A

01-0502 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

55 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

2505 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Þvottahús



425 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

683.394 kr/m²

Betri Stofan fasteignasala og Jason Ólafsson fasteignasli kynnir: Glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Heklureit þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Gólfsíðir gluggar hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn og auka útsýni. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Íbúðir á efri hæðum hafa eigin þakgarða en sameiginlegur þakgarður verður einnig fyrir alla íbúa í húsinu ásamt fallegum inngarði. Frábær staðsetning í miðborginni en þó fjarri skarkala miðbæjarins.

Heimasíða um verkefnið

Íbúð 502 er 2ja herbergja íbúð á 5. hæð, með öllum þægindum sem hægt er að hugsa sér. Samtals 54,8 fermetrar. Svalir til vesturs og skiptist íbúðin í svefnherbergi, stofu, eldhúsi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Gólfhiti er í íbúðinni. Íbúðinni er skilað með harðparketi. Sérgeymsla fylgir að stærðinni 8,3 fm, merkt 082. Og stæði í bílageymslu fylgir með.

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds.

Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga.

Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af væntanlegu brunabótamati

Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:

Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 / jason@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Laugavegur 168A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16