HÚSASJÁ

Asparlaut 5

03-0101 · 230 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

241 m²

Stærð

7

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2023

Byggingarár

7383 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



333 dagar á sölu

sell

129.900.000 kr

539.900 kr/m²

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala kynnir til sölu glæsilegar eignir í einu vinsælasta hverfi Reykjanesbæjar:

Asparlaut 5, íbúð 101 í fullbúnu, 12 íbúða, nýju fjölbýlishúsi í Hlíðarhverfi. Birt stærð eignarinnar er 150.6 fm. Eigninni fylgir mjög rúmgóð geymsla (21,3 fm) og stæði í bílgeymslu.

Eignin er vönduð og er á tveimur hæðum, hefur 5 rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús. Sjónvarpsrými er á herbergisgangi. Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu björtu rými. Eignin hefur tvo sér innganga og lyfta er í húsinu.

Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. Arkitekt ARKÍS.

Nánari upplýsingar veita ásamt sölugögnum:

Unnur Svava Sverrisdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555 eða unnur@allt.is

Páll Þorbjörnsson löggiltur fasteignasali, í síma 6986655 eða pall@allt.is

Elínborg Ósk Jensdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 8231334 eða elinborg@allt.is

Umhverfi: Umhverfið um eignina verður mjög skemmtilegt með skjólgóðu miðjusvæði fyrir íbúa. Eignin er í göngufæri við alla helstu þjónustu og öll helstu íþróttamannvirki, fjölbrautaskóla og útivistarsvæði. Um 25 mínútur frá höfuðborgarsvæði og 5 mínútur frá Flugstöð.

Allar eignirnar í húsinu eru ti sölu. Tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir á verðbilinu 54.900.000 - 129.000.000.

* Innihurðir eru yfirfelldar frá Birgison / Parka

* Útihurðir frá Rational

* Íbúðirnar eru upphitaðar með ofnakerfum

* Loftræsti-, vatns,- og þrifalagnir fylgja frágengnar. Forhitari er á heitu neysluvatni

* Póstkassar verða í stigahúsi

* Fólkslyfta er í húsinu af gerðinni Mono Space frá Kone

* Bílgeymsla er í opnu bílskýli á milli húsa, gólf steypt og vélslípað og bílastæði merkt

* Sorpgeymsla verður á sérmerktu svæði á lóðinni

* Það er með tvöföldu lagi af eldsoðnum tjörupappa ofan á steypta plötu. Einangrun er 200mm rakavarin þrýsti einangrun.

* Útiljós og rafmagnstengill er á öllum svölum

* Lóð verður fullfrágengin. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið. Bílastæði eru malbikuð og eða hellulögð.

Íbúðirnar skilast allar án gólfefna á alrýmum og herbergjum en með flísum á votrýmum. Að öðru leyti fullbúnar að innan með fullbúinni útiaðstöðu.

Áætlaður afhendingartími er í september 2025

Kostnaður kaupanda:

1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.

2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.

3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.

4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.

5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Kort af Asparlaut 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26
Asparlaut 5, 03-0101 | Húsasjá