Asparlaut 1
01-0204 · 230 Reykjanesbæ



34 dagar á sölu
58.900.000 kr
737.171 kr/m²
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir nýtt í sölu glæsilegar íbúðir við Asparlaut 1 í Reykjanesbæ. Um er að ræða 5 hæða fjölbýlishús í flottum íbúðarkjarna í vinsælu Hlíðarhverfi í Keflavík. Asparlaut 1 er 30 íbúða hús með lyftu og stæði í sameiginlegri bílageymslu með svalir til suðurs. Um er að ræða staðsteypt hús klætt að utan með áli og tvöföldu gleri. Íbúðirnar eru 2ja til 4ra herbergja, 74fm til 162fm. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en þó eru gólfefni á votrýmum. Stæði í bílageymslu fylgir völdum íbúðum. Útlitsmyndir af íbúðum eru aðeins til viðmiðunar.
Um er að ræða vel staðsett hús í fallegu Hlíðarhverfi í Reykjanesbæ þar sem stutt er í skóla og alla frekari þjónustu.
Áætlað afhending er í júlí/ágúst 2026.
Íbúð 204
Tveggja herbergja 79,9 fm íbúð á annarri hæð, þar af er geymsla 11,1 fm.
Bókið skoðun í síma 420-4000 eða studlaberg@studlaberg.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






























































