Vetrarbraut 3
01-0102 · 815 Þorlákshöfn



143 dagar á sölu
71.900.000 kr
499.653 kr/m²
Betri Stofan Fasteignasala kynnir nýtt, fallegt og vel skipulagt 4ra herbergja parhús að Vetrarbraut 1-3, Þorlákshöfn. Eignin er samtals 143,9 fm, þar af er íbúðarhluti 110,5 fm og bílskúr 33,4 fm. Húsið er mjög vel staðsett við botnlangagötu í göngufæri við skóla, leikskóla og íþróttamannvirki ásamt allri helstu þjónustu. Húsið er einangrað og klætt að utan og því viðhaldslétt. Gólfhiti í gólfum.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita Atli S. Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 / atli@betristofan.is og Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763 / dagrun@betristofan.is
Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott anddyri með flísum á gólfi
Stofa og eldhús: Stofa og eldhús mynda bjart og rúmgott alrými. Gert er ráð fyrir eyju. Svalir út í garð - snýr í suður
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi
Möguleiki á að nýta 10,3 fm geymslu sem fjórða herbergi, með sérútgengi að aftan og einnig í gegnum bílskúr.
Baðherbergi: Baðherbergi er hannað með góðu skipulagi. Frágangur samkvæmt skilalýsingu.
Þvottahús: Þvottahús með aðstöðu fyrir vask, þvottavél og þurrkara
Bílskúr: 33,4 fm - Gengið úr þvottahúsi í bílskúr sem er flísalagður
Gert er ráð fyrir rafbílahleðslu.
***Kaupendum stendur til boða að fá húsið fullfrágengið í samvinnu við byggingaraðila.***
***Einnig er hægt að fá ráðgjöf af byggingar aðila varðandi frágang hússins***
Nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 866 1763, tölvupóstur dagrun@betristofan.is og Atli S, Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178, tölvupóstur atli@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir












