Lautargata 6
01-0405 · 210 Garðabæ



238 dagar á sölu
139.800.000 kr
501.795 kr/m²
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:
Glæsileg útsýnisíbúð á 4. hæð í nýlegu húsi (2023) við Lautargötu í Urriðaholti - íbúðinni fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu á jarðhæð hússins.
Íbúðin er staðsett í innsta húsinu við Lautargötu, alveg við Heiðmörkina. Aukin lofthæð er í íbúðinni (2,75 m).
Eignin er samtals 139,3 fm (þar af geymsla á jarðhæð 11,8 fm)
Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / olafur@hibyli.is eða Ingibjörgu Þórðardóttur löggiltum fasteignasala í síma 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is
Lýsing eignar:
Forstofa: Harðparket á gólfi, fataskápar.
Setustofa: Mjög rúmgóð og björt, opin við eldhús, harðparket á gólfi, glæsilegt útsýni að Vifilsstöðum, Heiðmörk og víðar.
Borðstofa: Opin við eldhús, harðparket á gólfi, útgengi á skjólgóðar svalir sem snúa í suður.
Eldhús: Ljósgrá innrétting með miklu skápa og vinnuplássi, eldunareyja sem unnt er að sitja við, quartz borðplötur, innfelld tæki, loft niðurtekin að hluta með innfelldri lýsingu.
Svefnherbergi 1: Rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, fataherbergi inn af.
Svefnherbergi 2: Einnig gott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi, flísar á veggjum og gólfi, flísalagður sturtuklefi með glerhlið sem gengið er slétt inní, ljósgrá innrétting undir vaski og efri skápar, quartzborðplata, handklæðaofn, upphengt salerni.
Þvottahús: Innan íbúðar (inn af baðherbergi), flísar á gólfi, innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara í hentugri vinnuhæð.
Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðari bílageymslu á jarðhæð hússins.
Íbúðinni fylgir rúmgóð sérgeymsla á jarðhæð hússins.
Afar glæsileg íbúð í góðu og aðgengilegu húsi á eftirsóttum stað í Urriðaholti- stutt í falllegar gönguleiðir og útivistarsvæði í og við Heiðmörkina.
Örstutt í alla helstu verslun og þjónustu - stutt í helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins
Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




































