HÚSASJÁ

Vörðubrekka 6

Lóð · 806 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
4 myndir

5878 m²

Lóð



636 dagar á sölu

sell

4.950.000 kr

Stórborg fasteignamiðlun kynnir í einkasölu eignarlóðina Vörðubrekka 6, 806 Selfoss, ( og lóðin nr. 8 er einnig til sölu )nánar tiltekið eign merkt 01-01,  ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi eignarlóðar réttindi.

Eignin Vörðubrekka 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 2528689, birt stærð 5878.0 fm. Eignarlóð undir sumar/heilsárshús. Fjarlægð er rétt tæplega 100km úr Reykjavík á bundnu slitlagi.

Eignarlóð með fallegu útsýni steinsnar frá Laugarási í Biskupstungum úr landi Iðu 2. Lóðin er 5878 fm í rólegu sumarhúsahvefi í fallegri hallandi hlíð. Landið er í norðurhlíðum Vörðufells og hallar til austurs og er svæðið þekkt fyrir veðursæld. Lóð er í nágrenni við margar af helstu náttúruperlum Suðurlands. Aðkoman er frá gamla Skálholtsveginum. Örstutt er yfir í Laugarás og Skálholt. Stutt er í Reykholt og Flúðir. Góð aðkoma og frábært útsýni til fjalla. Staðsetning er rétt hjá Hvítá, rétt hjá Laugarási. Landið er í hlíðum Vörðufells í halla og með útsýni.

Búið er að opna baðlón í Laugarási. Er það glæsileg aðstaða og með veitingastað.

sjá:Glæsilegt baðlón við árbakka Hvítár

laugaraslagoon.is

Gott aðgengi er að lóðinni, hitaveita og neysluvatn ásamt rafmagni komið á svæðið. Tengigjöld skv. gjaldskrá rafveitunnar og Veitna. Gert er ráð fyrir sameiginlegri rotþró er á svæðinu en eins geta menn sett upp rotþró á hverri lóð með heimild heilbrigðisnefndar sveitarfélagsins. Hver lóðareigandi sér um aðkomu að sinni lóð frá veginum.

Búið er að gera veg inn á lóð ( upp hlíðina) að byggingareit lóðar. Samkvæmt deiliskipulagstillögu má byggja eitt hús á lóð. Samanlagt byggingarmagn húsa má vera allt að 170-207fm. (nýtingarhlutfall er að hámarki 0.03.). Ennig má á lóðunum reisa svefnhús/gróðurhús að hámarki 30 fm. Ath enginn veiðiréttur fylgir lóðinni í Iðu/Hvítá.

Um Vörðufell: Vörðufell (391m) stendur stakt sunnan og austan Hvítár hjá Iðu og skammt frá Skálholti. Það er þríhyrningslaga og er bæði í Biskupstungum og á Skeiðum. Uppi á fjallinu er lítið stöðuvatn, Úlfsvatn, sem reynt var að sleppa í silungi. Fjallið er úr móbergi og grágrýti.

Útsýnið ofan af Vörðufelli er afbragðsgott á góðum degi og sífellt fleiri leggja leið sína þangað.

Algeng gönguleið er á Vörðufellið. Göngutími er 5-6 tímar.

Golfvellir og sundlaugar eru einnig í næsta nágrenni. ( Flúðir/Geysir/Reykholt)

ATH. Ennig möguleg kaup á tveimur öðrum lóðum á svæðinu. Þær lóðir eru 5.800-6.900 fm. ( verð 4.9-5.9 millj)

Nánari upplýsingar veitir: Stefán Hrafn lögm,löggfasts. s:8952049, stefan@storborg.is

Kort af Vörðubrekka 6

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð