HÚSASJÁ

Hafnarstræti 36

02-0201 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

61 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

1130 m²

Lóð

Garður

Svalir

Þvottahús



19 dagar á sölu

sell

51.900.000 kr

849.427 kr/m²

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Hafnarstræti 36 íbúð 201 - Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á efri hæð í nýlegu (2024) fjórbýli í Innbænum - stærð 61,1 m²

*  Einstakt útsýni út á pollinn.

*  Þrefalt gler í gluggum

*  Tvennar svalir

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.

Á lóðinni er sameiginlegur geymsluskúr sem skipt er upp í fjögur geymsluhólf og á íbúðin eitt þeirra.

Forstofa er með harðparketi á gólfi og þreföldum skáp.

Eldhús, falleg hvít innrétting með dökkri bekkplötu og þiljum á milli skápa. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Úr eldhúsi er gengið út á austur svalir með útsýni út á pollinn.

Stofan er skemmtilegt rými þar sem harðparket er á gólfum, loft tekin upp og gluggar til tveggja átta. Útgengt er úr stofunni á vestur svalir.

Svefnherbergið er með harðparketi á gólfi og hvítum fataskáp. Herbergið er skv. teikningum tæpir 11 m² að stærð.

Baðherbergi er með gráu epoxy efni á gólf og ljósum þiljum á veggjum. Hvít innrétting, upphengt wc og sturtuklefi. Sér innrétting er inn á baðherberginu fyrir þvottavél í vinnuhæð.

Annað

- Loft er tekið upp í allri íbúðinni.

- Ídráttarrör liggur að bílastæði fyrir t.d. hleðslustöð.

- Sér bílastæði.

- Snyrtileg sameign með dökku teppi á gólfum.

- Vel staðsett eign - örstutt í miðbæinn.

- Eignin er í einkasölu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Hafnarstræti 36

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð