HÚSASJÁ

Elsugata 7

01-0101 · 815 Þorlákshöfn

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

386 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1153 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Þvottahús



23 dagar á sölu

sell

48.900.000 kr

380.249 kr/m²

Fasteignasalan Garður

Nýtt, fallegt, 4ra herbergja endaraðhús að Elsugötu 7, Þorlákshöfn. Húsið er á frábærum stað í nýju, fallegu hverfi sem er í mikilli uppbyggingu í Þorlákshöfn, og er eignin staðset mjög nálægt grunnskólanum.

Húsið er skemmtilega skipulagt, klætt vönduðum flötum álplötum sem á eftir að setja svip á eignina þar sem hún er mun vandaðari en báran. Einnig verður bílaplan steypt með ílögn fyrir hita í plani sem liggur inn í bílskúr. Húsið snýr skemmtilega eða með garð til suðvesturs.

* Eignin afhendist á byggingarstigi 2 - fokheld bygging.

* Afhendingartími er samkomulag.

Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is

Skipulag eignar: Anddyri, gangur, þrjú svefnherbergi, í opnu alrými er stofa / borðstofa og eldhús, baðherbergi/þvottahús og Bílskúr.

Skilalýsing á byggingarstigi 2 – fokheld bygging: Nánari lýsing hjá fasteignasölu.

Útveggir

Útveggir eru klæddir með loftræstri liggjandi báruálklæðningu, grá að lit sem er brotin upp með standandi klæðningu.

Þak

Þak er hefðbundið niðurtekið kraftsperruþak með 18° þakhalla. Ofan á sperrur kemur borðaklæðning þakpappi og að lokum bárujárn, svart að lit. Þak er einangrað með 200mm þakull.

Þakkantar og vindskeiðar

Þakkanntar og vindskeiðar eru úr timbri svartar að lit, undirklæðningin er einnig úr timbri í svartar lit. Rennur eru innfeldar í þakkant og eru úr stál-Svartur, tengdar frárennslislögnum í púkk á lóð. Niðurfallsrör eru 70mm úr sama efni.

Gluggar og útihurðir

Gluggar og hurðir eru úr ál/timbri hvítir að innan, svartir að utan að lit, gler í gluggum er tvöfalt K-einangrunargler. Tvöfalt samlímt öryggisgler er í gólfsíðum gluggum/hurðum, sem og öllum gluggum/hurðum sem eru allt að 600mm frá gólfi. Allar útihurðir (hurðarflekar) eru 900 mm að breidd.

Aðgengi og lóð

Lóð: Garðurinn skilast með þjöppuðu undirlagi fyrir þökur. Bílaplan verður steypt með hitalögn sem verður þó ótengd inn í bílskúr. Forsteypt sorpskýli fyrir þrjár tunnur staðsett skv. teikningum. Útiljós fylgja en verða óuppsett, börkum verður komið inn í hús.

Frágangur innanhúss:

Gólf

Botnplata er röraslödduð tilbúin til flotunar og ílagnar í votrýmum.

Innveggir

Veggir milli íbúða eru byggðir upp úr timbur grind, einangraðir og klæddir með gifsi íbúðarmegin. Veggur milli skúrs og íbúða eru byggðir úr timburgrind, einangraðir og klæddir með gifsi.

Útveggir að innan:

Búið er að ulla útveggi og rakasperra kominn ásamt rafmagnsgrind.

Loft

Kraftsperrur eru í húsinu og öll loft eru niðurtekin. Komnir eru skilveggir milli notendaeininga, einangraðir og klæddir tvöföldu gifsi. Hið sama gildir um skilveggi innbyggðra bílskúra. Búið er að ulla loftið og ganga frá rakasperrum. rafmgansgrind kominn.

Hitalögn

Hitalagnir eru í steyptar í botnplötu, tengikistur óuppsettar og ófrágengnar. Heimtaug hitaveitu ótengd, ídráttarrör tilbúin út fyrir hús.

Neysluvatnslagnir

Neysluvatnslagnir eru úr rör í rör kerfi í steypta botnplötu, óuppsettar og ófrágengnar. Heimtaugar komnar inn en ótengdar.

Fráveitulagnir

Skólplagnir eru tengdar fráveitu kerfi í götu. Frárennslislagnir eru tengdar í grjótpúkk á lóð.

Rafmagn

Heimtaugar rafmagns og boðtauga komnar en ótengdar.

Annað:

·         Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd.

·         Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald þegar það er lagt á við endanlegt brunabótamat.

·         Allar teikningar liggja fyrir þ.e. aðalteikningar, sökkulteikningar, burðarvirkisteikningar, glugga- og hurðateikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.

Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Kort af Elsugata 7

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14