Elsugata 14
01-0101 · 815 Þorlákshöfn

32 dagar á sölu
29.900.000 kr
235.804 kr/m²
Jason Kristinn Ólafsson sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala í Borgartún 30 kynna: Elsugata 14-18 - Lóð fyrir 3 raðhús á einni hæð með bílskúr. Nýlegt hverfi í Þorlákshöfn.
Byggingarlóð til sölu fyrir raðhús á frábærum stað í Þorlákshöfn.
Nánari lýsing:
Um er að ræða lóð fyrir þrjú, 133 fm raðhús, alls 400 fm, á besta stað í Þorlákshöfn.
Búið er að greiða eftirfarandi gjöld af þessum lóðum: byggingarleyfisgjöld, gatnagerðargjöld, heimaæðagjald (vatnsveita), stofngjald vatnsveitu og heimaæðagjald (holræsi). Búið er að vinna jarðvinnuna, - þ.e.a.s. kominn púði.
Við enda götunnar er falleg kirkja og í næsta götu er íþróttahús, skóli og hin fræga sundlaug Þorlákshafnar.
Atvinnuuppbygging í Þorlákshöfn um þessar mundir er söguleg og mikil gróska er í bænum.
Allar nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna