HÚSASJÁ

Hringbraut 120

01-0302 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

107 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

4163 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



558 dagar á sölu

sell

112.900.000 kr

1.057.116 kr/m²

Guðmundur Þór Júlíusson og Ágúst Ingi Davíðsson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Nánar um eign 01-0302 á Hringbraut 120: Eignin er þriggja herbergja herbergja íbúð á 3. hæð merkt  01-0302. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara merkt 0015 birt stærð 6,3 fm. Eigninni tilheyra svalir merktar 0324. Birt heildarstærð séreignar er 106,8 fm.

Gólfhiti - Gólfsíðir gluggar - Vandaðar innréttingar og gólfefni -  Flott sjávar- og fjallaútsýni.

*Lán seljanda allt að 15% af kaupverði íbúðar.* Grandatorg.is - Heimasíða verkefnisins

Bókið skoðun hjá Gumma Júl og Ágúst í síma 858-7410/787-8817 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is/agust@remax.is

Nánari lýsing:

Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.

Svefnherbergi I: Gott svefnherbergi með fataskáp.

Baðherbergi með Walk-in sturtu, flísum á gólfi og á hluta af veggjum. Handklæðaofn, upphengt salerni, baðinnrétting með handlaug og spegil.

Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu og björtu alrými með gólfsíða glugga, útsýni og útgengi út á svalir.

Eldhús er með vandaða innréttingu, gott skápa- og skúffu pláss, undirlímdur vaskur, bökunarofn í vinnuhæð, helluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frystir.

Hjónasvíta er rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum og innbyggðum fataskápum.

Sér þvottahús er með flísum á gólfi, tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvask og efri skápa.

Íbúðirnar umlykja flestar fallegan inngarð þar sem líf og samfélag rennur saman og skapar nánd milli íbúa. Í hverju skrefi var hugað að þægindum, notagildi og stíl sem fellur vel að umhverfi við Sjávarsíðuna.

Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning. Íbúðin er afhent með gólfefnum, harðparket á gólfi að undanskildum votrýmum, þar verða 60 x 60 flísar. Eldhús skilast með innbyggðum ísskáp og frystir ásamt innbyggðri uppþvottavél. Í öllum herbergjum og stofum er búið að setja upp hvítar rúllugardínur.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Ágúst Ingi Davíðsson löggiltur fasteignasali í síma 787-8817 eða agust@remax.is

Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati íbúðarinnar.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef um lögaðila er að ræða) af heildar fasteignamati.

2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

Kort af Hringbraut 120

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu
Hringbraut 120, 01-0302 | Húsasjá