Búðarmelur 27
01-0101 · 730 Reyðarfirði



34 dagar á sölu
69.900.000 kr
496.097 kr/m²
Borg fasteignasala ehf. og Einar Pálsson löggiltur fasteignasali kynna einbýlishús í byggingu á einni hæð með fallegu útsýni að Búðarmel 27, 730 Reyðarfirði sem verður alls 140,9 fermetrar að stærð. Vandað efnisval og fyrirmyndar frágangur einkennir húsið. Áhugasamir aðilar geta komið á við á framkvæmdarstað og hitt verktaka og eins haft samband við Einar Pálsson lgf. til þess að nálgast frekari upplýsingar um eignina. Verkefni sem vert er að skoða.
Nánari lýsing á eign:
Búðarmelur 27 er einbýlishús á einni hæð. Hönnun er í samræmi við gildandi skilmála deiliskipulags Fjarðarbyggðar Melur 1, með síðari breytingum. Húsið samanstendur af 3 svefnherbergjum, stofu, eldhús, baðherbergi ,Þvottaherbergi/vaskahúsi og anddyri.
Nýtingahlutfall lóðar er 0,24 og eru 3 bílastæði á lóð.
Að utan er eignin fallega klædd með sementstrefjaplötum og viðarklæðningu ásamt ytri lýsingu sem mun fegra heimilið hvort sem er að degi til að eftir að dimma tekur. Þakið er vel einangrað og þar er efnisval sérlega valið með gæði og endingu í huga, timbur með málm klæðningu. Gluggar og hurðir eru úr timbri af góðum gæðum.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa er með flísum á gólfi og föstum fataskápum.
Gengið er inn í þvottahús úr forstofu, alls 6,22 m2 að stærð með flísum á gólfi og innréttingu með vask.
Eldhús og stofa eru í sameiginlegu rými, alls 54,18 m2 að stærð með gólfsíðum gluggum til þriggja átta. Parket eru á eldhúsi og parket á stofu. Eyja er í eldhúsi. Vandað efnisval á innréttingum og gólfefni. Út gengt er á tveimur stöðum úr eldhúsi og stofu út á verönd/lóð.
Þrjú svefnherbergi eru í eigninni, öll með parket á gólfi og föstum fataskápum. Út gengt er úr hjónaherbergi út á verönd/lóð. Öll eru herbergin stór, eða frá 12,56 m2 til 14,19 m2.
Rúmgott baðherbergi, alls 9,06m2 að stærð er með flísum á gólfi og veggjum, upp hengdu salerni, sturtu, handklæðaofn og innréttingu.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati samkvæmt reglugerð 737/1997 þegar það verður innheimt af sýslumanni.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Einari Pálssyni, löggiltum fasteignasala í síma 857-8392 og á netfangið einar@fastborg.is
-Eignin er í einkasölu.
-Raflögn klár fyrir rafbílahleðslustöðvar.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnun.ar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




