HÚSASJÁ

Tildra

Lóð · 801 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
12 myndir

20574 m²

Lóð

Geymsla



189 dagar á sölu

sell

6.500.000 kr

Elka Guðmundsdóttir s. 863-8813 löggiltur fasteignasali hjá Fasteignasölunni TORG, kynnir til sölu Tildruslóðir – fallegar eignalóðir í Flóahreppi, nálægt Stokkseyri.

Svæðið er einstaklega vel staðsett í nálægð við strandlengjuna, þar sem náttúran og fuglalífið spila saman við sjávarloftið og rólega umhverfið.

Mikil víðsýni er til fjalla og mjög gott aðgengi, stutt er í þéttbýlið á Stokkseyri og aðeins um 10 mínútna akstur á Selfoss þar sem öll þjónusta er til staðar. Reykjavík er innan við klukkutíma akstursfjarlægð.

Lóðirnar eru ýmist frístundahúsalóðir eða landbúnaðarlóðir, allar með hlutdeild í sameign fyrir vegstæði og opin svæði skv. landeignaskrá.

B1 svæði (frístundalóðir): Heimilt að byggja frístundahús + gestahús/geymslu að 150 m² - Hámarksnýtingarhlutfall: 0,03 fyrir frístundabyggð.

B2 svæði (landbúnaðarlóði): Heimilt að byggja íbúðarhús + útihús/geymslu allt að 350 m².

Verð og stærðir lóða:

Tildruslóð 1 – 6.037 fm.  – Verð: 6.500.000 kr. – Frístundahúsalóð (L239019)

Tildruslóð 2 – 9.000 fm. - Verð: 8.000.000 kr. – Frístundahúsalóð (L239018)

Tildruslóð 3 – 5.710 fm.  – Verð: 7.500.000 kr. – Frístundahúsalóð (L239020)

Tildruslóð 5 – 6.780 fm. – Verð: 8.500.000 kr. – Frístundahúsalóð (L239021)

Tildruslóð 4 – 37.031 fm.  – Verð: 21.500.000 kr. – Landbúnaðarlóð (L239022)

Tildruslóð 6 – 43.292 fm.  Verð: 24.500.000 kr. – Landbúnaðarlóð (L239023)

Tildruslóð 8 – 43.148 fm. – Verð: 26.000.000 kr. – Landbúnaðarlóð (L239024)

Sameign Tildra – vegstæði og opin svæði fylgja hlutfallslega með hverri lóð: 20.574 fm. (L235690).

Seljandi skal leggja veg að lóðamörkum á sinn kostnað og skal þeirri framkvæmd lokið fyrir undirritun afsals.

Að auki leggur seljandi kalt vatn og rafmagn að lóðamörkum.

Smellið hér til að sjá nákvæma staðsetningu á google maps.

Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem vilja tryggja sér stórar og vel staðsettar lóðir á einstöku svæði þar sem kyrrðin og náttúran eru í fyrirrúmi.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsd. í síma 863-8813 // netfang: elka@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Tildra

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð