HÚSASJÁ

Engjaland 4

01-0401 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
51 myndir

169 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2024

Byggingarár

2290 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



18 dagar á sölu

sell

158.000.000 kr

937.129 kr/m²

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Glæsileg útsýnisíbúð á efstu hæð í vönduðu fjölbýli fyrir 55 ára og eldri.

Húsið er staðsteypt, klætt að utan með litaðri álklæðningu frá Áltak, gluggar og hurðir eru ál/tré.

Íbúðin er alls 168,6m2 að stærð og er geymsla í kjallara 14,6m2 þar af auk þess sem íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara.

Að innan skiptist íbúðin í forstofu, 2 svefherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús, stórt eldhús og mjög rúmgóða stofu þar sem er rennihurð útá um 80m2 svalir með heitum potti.

Nánari lýsing:

Forstofan er parketlögð og þar er stór fataskápur.

Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir en þar er frístandandi baðkar með fallegum blöndunartækjum, falleg innrétting með steinborðplötu. Gólfhiti er á baðherbergi.

Þvottahúsið er flísalagt, þar er góð innrétting fyrir tæki í vinnuhæð.

Herbergi er parketlagt.

Hjónaherbergi er parketlagt, þar er stór fataskápur. Innaf því er Baðherbergi og er það flísalagt bæði gólf og veggir en þar er gólfsturta með innbyggðum blöndunartækjum og falleg innrétting með steinborðplötu, þaðan er svo útgegnt á svalir með heitum potti.

Í eldhúsi er stór innrétting með eyju og vönduðum heimilstækjum, steinborðplata er á borðum og gólf eru parketlögð.

Alrými er parketlagt, þar er huggulegur arinn.

Svalirnar eru 80 m2, þær eru flísalagðar og þar er heitur pottur.

Geymsla þessarar íbúðar er í kjallara og er hún 14.6 m2 m2.

Stæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og er gert ráð fyrir rafhleðslu fyrir rafmagnsbíla í hverju stæði.

Vandaðar innréttingar frá HTH eru í öllum íbúðum og eru heimilstæki frá Ormson. Flísar koma frá Parka og parket er frá Planka. Steinn á borðum kemur frá S. Helgason.

Innihurðir eru sérsmíðaðar frá Beyki og eru í 220 cm hæð

Loftskiptikerfi með einfaldri stýringu er í íbúðinni.

Lóðin er frágengin og bílaplan er malbikað.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga

arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Engjaland 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51