HÚSASJÁ

Hringhamar 31

01-0403 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

80 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2023

Byggingarár

3095 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



421 dagar á sölu

sell

68.900.000 kr

865.578 kr/m²

Afhending strax við kaupsamning.

Húsin eru Svansvottuð.

LIND Fasteignasala kynnir: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Hringhamar 31-33 í nýju hverfi í Hamranesi í Hafnarfirði. Íbúðirnar afhendast án gólfefna. Allar íbúðir er búnar með sérstöku loftræstiskerfi. Umframgæði sem

tryggja mjög góð loftskipti og góða nýtingu á varma. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.

Íbúð 403 er þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð með tveimur svefnherbergjum og sér bílastæði í kjallara. Samtals er íbúðin 79,6 fm og þar af er geymslan 6,9 fm. Hlutdeildarlán í boði.

// VILDARKORT LINDAR //

Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:

Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins www.hringhamar.is

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:

KRISTJÁN ÞÓRIR HAUKSSON Í S: 696-1122 / KRISTJAN@FASTLIND.IS

ANDRI FREYR HALLDÓRSSON Í S: 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS

Gólf íbúða eru fleytt og tilbúin fyrir endanlegt gólfefni, nema í baðherbergi og í þvottahúsi en þar eru flísar á gólfum. Einnig eru flísar á veggjum baðherbergja, flísar eru frá Parka. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötur eru í eldhúsi, baði og þvottahúsi þar sem við á og eru frá Axis.

Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.

Baðherbergi: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loft

Loftræsting: Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður um 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunnar.

Frágangur sameignar: Anddyri/stigahús er lokað og er það flísalagt á aðkomuhæð með uppsettum póstkössum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir, handrið eru á stigagöngum. Allar útidyrahurðir frágengnar og er rafmagnsopnun á aðalinngöngum. Sameign er upphituð með ofnakerfi. Raflagnir í sameign eru fullbúnar með ljósum, sbr. teikningar. Loftræstilagnir eru lagðar skv. teikningu.

Sameign: Í bílgeymslu er lagt grunnkerfi fyrir bílhleðslu. Eigendur stæða í bílgeymslu

geta sett upp eigin hleðslustöð og tengt inn á grunnkerfi bílgeymslu

Skólar og leikskólar eru í nágrenni og eru öruggar göngu- og hjólaleiðir að þeim. Einnig er fyrirhugað að nýr leikskóli rísi í næsta nágrenni.

Hverfið er í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell.

Eignin afhendist skv meðfylgjandi skilalýsingu.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:

KRISTJÁN ÞÓRIR HAUKSSON Í S: 696-1122 / KRISTJAN@FASTLIND.IS

ANDRI FREYR HALLDÓRSSON Í S: 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900.- með vsk.

5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á

Kort af Hringhamar 31

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17