HÚSASJÁ

Lyngalda 1

01-0101 · 850 Hellu

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

100 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

1485 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Þvottahús



504 dagar á sölu

sell

57.800.000 kr

579.739 kr/m²

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna:

Lyngalda 1a, 3herb., 99,7fm, nýtt endaraðhús með bílskúr á Hellu, í byggingu - selst fullklárað.

- SELJANDI BÝÐUR UPP Á 20% HLUTDEILDARLÁN Á SÖMU FORSENDUM OG HMS GEGN 10% EIGINFJÁRFRAMLAGI KAUPENDA -

- Ath meðfylgjandi innimyndir eru úr íbúð E á hinum enda hússins sem er tilbúin og einnig til sölu -

Húsið er hefðbundið timburhús, timburgrind í útveggjum, kraftsperrur í þaki, milliveggir með blikkstoðum klæddir gipsi, tvöfaldir brunaveggir milli íbúða.

Að utan er húsið klætt með bárujárni sem og þakið.  Gluggar og hurðir eru ál/tré.

Stofa og eldhús eru í sameiginlegu opnu rými og gengt þaðan út í garð fyrir enda hússins.

Í eldhúsi verður innrétting með plastlagðri borðplötu og vönduð tæki, - keramik helluborð.

Góðir fataskápar verða í hjónaherbergi, barnaherbergi og forstofu.

Á baðherbergi verður sturta með glerskilrúmi og veggir við sturtu flísalagðir með samskonar flísum og gólf, handlaug á innréttingu, upphengt klósett og innrétting fyrir þvottavél.

Innihurðir verða yfirfelldar og hvítar að lit.

Gráar flísar verða á gólfum í forstofu og baðherbergi/þvottahúsi.

Harðparket í viðarlit á öðrum rýmum. Hefðbundið gólfhitakerfi og handklæðaofn á baði.

Í bílskúrnum verður flotað gólf og innkeyrsludyr með rafopnun.

Lóðin þökulögð, mulningur í bílaplani og ruslatunnuskýli.

- SELJANDI BÝÐUR UPP Á 20% HLUTDEILDARLÁN Á SÖMU FORSENDUM OG HMS GEGN 10% EIGINFJÁRFRAMLAGI KAUPENDA -

--  VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN  --

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar.

S. 896 9565    loftur@husfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.

5. Skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati eftir lokaúttekt.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Lyngalda 1

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð