Borgahella 17X
01-0123 · 221 Hafnarfirði



3 dagar á sölu
49.900.000 kr
693.056 kr/m²
Frábært tækifæri, snyrtilegt iðnaðarbil með millilofti sem hefur verið innréttað sem íbúð.
Árni Björn Erlingsson Lgf. og Fasteignaland ehf. kynna eignina Borgahellu 17X, nánar tiltekið eign merkt 010123, fastanúmer F2526378 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign, birt stærð 72 fm.
Lýsing eignar:
Glæsilegt 144,0 fm geymsluhúsnæði með stóru millilofti við Borgahellu 17 í Hafnarfirði.
Eignin er skráð 72 fm sem er birt flatarmál neðri hæðar en til viðbótar hefur verið byggt milliloft yfir allt rýmið.
Lýsing:
Inngöngu- og innkeyrsluhurð í opinn sal með salerni innaf og Epoxy á gólfi. Stigi upp á efri hæð sem í dag er innréttuð sem íbúð, með loftræstikerfi. Íbúðin skiptist í Stofu og eldhús með fallegri
eldhúsinnréttingu, með eldavél, ofni, uppþvottavél og ískáp stofan og eldhúsið renna saman í eina heild. Svefnherbergi er með fataherbergi innaf og svo er stórt baðherbergi með sturtu og gert ráð fyrir þvottavél.
Nánari lýsing:
- Lofthæð góð, búið að setja milliloft. Einnig er geymsluloft yfir hluta af milliloftinu sem sagt á þriðju hæð.
- Innkeyrsluhurð 3x3m með rafmagnsmótor, gönguhurð við hlið innkeyrsluhurðar.
- Gólf steypt, Epoxy, niðurfallsristar.
- salerni í einu horninu með klósetti og vaski.
- Lóð malbikuð og frágengin, afgirt með 6m rafmagnshliði ásamt gönguhliði.
- Upphitað með hitablásara, lögn útbúin og búið að tengja ofna á 2. hæð.
- Límtré meginburðarkerfi.
- Klætt að utan með 80mm samlokueiningum einangraðar með PIR (RAL 7024). Einingarnar eru skrúfaðar á límtrésgrind.
- Þak klætt með 140 mm samlokueiningum með PIR (RAL 7024).
- Þakgluggar eru með sjálfbrennandi reyklosun.
- Innveggir eru samlokueiningar 100 mm einangraðar með steinull og uppfylla E60 brunakröfur eftir því sem við á.
Nánari upplýsingar veita:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



















