Dvergaholt 9
01-0211 · 603 Akureyri



92 dagar á sölu
68.800.000 kr
897.001 kr/m²
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Dvergaholt 9 íbúð 211 - Nýbygging
Glæsilegt 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli með lyftu og sér stæði í bílageymslu - stærð 76,7 m²
** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sér geymsla er á jarðhæðinni og sér stæði bílageymslu.
* Allar innréttingar eru frá Brúnás.
* Vandað harð parket á gólfum.
* Hljóðdempandi plötur í öllum loftum íbúðar nema baðherbergi.
* Loftskiptikerfi.
* Extra breitt stæði í bílageymslu.
Forstofa er með ljósu harð parketi á gólfi og þreföldum skáp. Loftræstisamstæðan er staðsett inn í skápnum.
Eldhús, vönduð ljós brún innrétting með grárri bekkplötu með marmara áferð. Ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél fylgja með við sölu eignar.
Stofa er ágætlega rúmgóð, með ljósu harð parketi á gólfi og rennihurð út á steyptar vestur svalir, skráðar 7,3 m² að stærð.
Svefnherbergin eru tvö og eru skv. teikningum 10,0 og 12,6 m² að stærð, bæði með ljósu harð parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er einkar glæsilegt, stein gráar flísar á gólfi og hluta veggja, ljós brún innrétting og speglaskápur, upphengt wc, walk-in sturta og opnanlegur gluggi. Tengi er fyrir þvottavél.
Sér geymsla er á jarðhæðinni, skráð 4,1 m² að stærð og með lökkuðu gólfi. Rafmagnstengill
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir

























