HÚSASJÁ

Háheiði 15

01-0108 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

113 m²

Stærð

1

Baðherbergi

2023

Byggingarár

3919 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla



646 dagar á sölu

sell

39.950.000 kr

355.111 kr/m²

EIGNARHLUTI: Fastanr. 252-5493, bil nr. 8 frá vinstri, merkt 0108.

Lýsing: Ath: Engar súlur eru í húsinu. Er því mjög auðvelt að sameina bil og stækka þannig einingar. Húsið er alls um 1.570 m², sem hægt er að nýta sem eina heild eða í hlutum. Það skiptist í 13 einingar, iðnaðarbil, tvö endabil 164,42 m² og 161,62 m² (selt), ellefu bil 113,22 m² hvert, að flatarmáli (þ.m.t. hlutdeild í sameiginlegu tæknirými). Allar einingar eru með eldhúsborði með vaski, fullbúnu baðherbergi með salerni, vaski og sturtu. Engar burðarsúlur eru milli bila og því auðvelt að opna milli bila og sameina, tvö eða fleiri, jafnvel heildareignina. Byggingin er á einni hæð með möguleikum á millilofti. Gólfhiti er í húsinu. Lóðin verður malbikuð. Sérafnotaréttur, bílastæði á lóð, fyrir hvern eignarhluta. Einstaklega vandað og vel búið húsnæði á góðum stað, með góðu aðgengi, stórum innkeyrsluhurðum og mikilli lofthæð. Húsfélag verður um heildareignina, með megin markmiði að halda eigninni og umhverfi snyrtilegu. Kvöð verður um að óheimilt sé að nýta lóðina undir geymslu bíla, tækja eða nokkurra annarra hluta.

Uppbygging húss: Húsið er byggt ofan á staðsteypta sökkla og botnplötu. Gólfplata: Hefðbundin staðsteypt plata, einangruð að innan, með ísteyptum gólfhita í öllu húsinu. Platan er sérstyrkt með 15-17 cm. steypuþykkt og auka járnmagni og vélslípuð. Neysluvatnslagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningum, rör í rör.

Útveggir/þak/þakkantur/burðarvirki: Einangrun verður samkvæmt gildandi byggingarreglugerð. Allir útveggir klæddir með steinullaryleiningum utan á stálgrind og þak hússins er klætt með steinullaryleiningum ofan á stálgrind. Burðarvirki er stálgrind, varin með eldvarnarmálningu El60. Litur klæðninga að utanverðu er RAL7016, þak RAL7035. Mænishæð er 6,952 metrar.

Gluggar og hurðir: Iðnaðarhurðir eru frá viðurkenndum og þekktum framleiðanda í góðum gæðum, breidd 4,20m x hæð 4,40m, litur að utan RAL 7016, og rafmótoropnun. Gluggar eru úr PVC. Hurðar eru úr stáli. Gler er tvöfalt einangrunargler. Gluggar og hurðir í gráum lit að utan RAL7016. Flasningar í kringum glugga og hurðir er í sama lit og og gluggar og hurðir.

Að innan: Innveggir eru 120 mm hefðbundnir gifsveggir. Milliveggir á milli bila eru 120mm yleiningar EI60. Í votrýmum eru rakavarðar gipsplötur. Innihurðar eru hefðbundar yfirfelldar innihurðar í ljósum lit.

Lagnaleiðir, frárennslis og neysluvatnslagnir: Skólp‐ og regnvatnslagnir eru fullfrágengnar og tengdar fráveitukerfi í götu. Inntök koma inn í tæknirými og þaðan deilt í hvert bil. Vatnslagnir eru leiddar undir botnplötu að töppunarstöðum, kalt neysluvatn undir einangrun, heitt vatn. Frárennsli innanhúss eru úr PP og undir botnplötu úr PVC. Fráveita og regnvatn fer í brunn sem tengist í fráveitu bæjarins. Vélræn loftræsting (útsog) skal vera úr baðherbergi. Brunavarnir eru í húsinu. Brunahönnun nær til hússins í heild.

Hitakerfi: Gólfhitakerfi sem er innsteypt í botnplötuna á járnagrind komið í hverja starfseiningu, deilikista með hringrásarkerfi tengd í hverri einingu. Kerfi stjórnað með handvirkum ofnloka.

Rafmagn: Aðaltafla með mælum fyrir hverja starfseiningu frágengin í inntaksrými. Greinatafla frágengin í hverri starfseiningu með einum þriggja fasa tengli við hliðina. Tenglar á nokkrum stöðum í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar. Full lýsing (LED) í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar sem uppfyllir viðkomandi reglur. Raflagnir lagðar í aðgengilegum kapalstigum. Útiljós eru við hurðir á hverri starfseiningu sem hægt er að stjórna frá viðkomandi einingu og tengist viðkomandi mæli (ekki sameign). Gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla við hverja einingu.

Lóð: Lóð afhendist malbikuð.

Girðing: Verið er að setja upp girðingu sem afmarkar heildareignina með aðgangsstýrðu hliði.

Virðisaukakvöð hvílir á húsinu. Kaupandi yfirtekur vsk kvöð. Ef ekki, greiðir kaupandi upp virðisaukakvöð að auki.

Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.

Byggingin er í umfangsflokki 2 skv. byggingarreglugerð, en þar undir falla m.a. atvinnuhúsnæði og iðnaðarhúsnæði. Skil hússins miðast við ÍST51:2021 BS4 – Fullgerð bygging.

Afhending getur verið við undirritun kaupsamnings.

Verð: Hver eining 113,22 fm., kr. 39.950.000

Nánari upplýsingar veitir: Jón Ingvar Pálsson, s. 780-0406, jon@aflvelar.is

Kort af Háheiði 15

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17