HÚSASJÁ

Þjóðbraut 5

01-0301 · 300 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

95 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2023

Byggingarár

3172 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



659 dagar á sölu

sell

67.500.000 kr

712.777 kr/m²

Háborg fasteignasala kynnir glæsilega íbúð á 3. hæð í nýju fjölbýlishúsi við Þjóðbraut 5. Í húsinu er lyfta og bílakjallari.

Eignin er samtals 94,7 fm og skiptist í 84,6 fm íbúð og 10,1 fm sérgeymslu auk bílastæðis í kjallara.

*Hlutdeildarlán*

Fjármögnunardæmi - 25 % hlutdeildarlán

• Útborgun (5%): 3.375.000 kr

• Hlutdeildarlán HMS (25%): 16.875.000 kr

• Húsnæðislán(70%): 47.250.000 kr

Fjármögnunardæmi - 35 % hlutdeildarlán

• Útborgun (5%): 3.375.000 kr

• Hlutdeildarlán frá HMS (35%): 23.625.000 kr

•Húsnæðislán (60%): 40.500.000 kr

Nútímaleg hönnun og gott skipulag. Húsið er vel staðsett miðsvæðis á Akranesi, stutt í alla almenna þjónustu.

Nánari lýsing á íbúð 301:

Anddyri með fataskáp.

Alrými með stofu og eldhúsi. Gengið er út á svalir úr alrými.

Eldhúsinnrétting er eikarlituð, AEG spanhelluborð og bakaraofn. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.

Svefnherbergi eru þrjú, í tveimur af þeim eru fataskápar.

Baðherbergi, gólf er flísalagt og veggir að hluta. Vaskinnrétting er eikarlituð, speglaskápur með Led ljósum. Sturta, upphengt salerni, Grohe blöndunartæki. Þvottaaðstaða er á baðherbergi. Hiti er í gólfum á baðherbergi.

Í kjallara er rúmgóð sérgeymsla, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla auk stæðis í bílageymslu.

Íbúðinni verður skilað samkvæmt skilalýsingu.

Afhending getur farið fram fljótlega.

Allar upplýsingar um eignina veita: Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali í síma 860-2078 eða kristin@haborg.is, Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822-1661 eða katla@haborg.is og Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is.

Húsið:

Byggingarfélagið Bestla ehf er framkvæmdaaðili, arkitektar og aðalhönnuðir eru Krark Arkitekt.

Húsið er á fimm hæðum og samanstendur af 38 íbúðum af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Í

húsinu er stiga- og lyftuhús en gengið er inn í íbúðirnar af svalagöngum.

Í kjallara hússins er bílageymsla með 26 bílastæðum ásamt sérgeymslum fyrir hluta af íbúðunum og vagna- hjólageymslu.

Húsið er staðsteypt, klætt með báruáli. Gluggar og svalahurðir eru úr timbri, klætt með áli að utan.

Hitalögn er í helstu gönguleiðum og í bílastæðum fyrir hreyfihamlaða.

Bílastæði eru austan og sunnan megin við húsið og frágangur lóðar er samkvæmt teikningum frá Landslagi ehf. Rafhleðslustöð er uppsett og gert er ráð fyrir að hægt sé að bæta fleirum við.

Íbúðum er skilað fullbúnum en án gólfefna, nema votrými eru flísalögð. Lofthæð íbúða er um 2,58 cm, veggir og loft eru máluð í litnum “soft sand” frá Flugger.

Hurðir eru af gerðinni Ringolit frá Birgisson, þær eru plastlagðar í eikarlit.

Innréttingar eru frá Voke-3, í eikarlit. Spanhelluborð og bakaraofnar eru frá AEG. Í íbúðunum eru ýmist innbyggðir gufugleypar eða lofthengdir eyjuháfar. Ísskápar og uppþvottavélar fylgja ekki en gert er ráð fyrir að hægt sé að hafa tækin innbyggð, hurðir til uppsetningar þeirra fylgja með.

Baðherbergi eru flísalögð að hluta, flísar eru frá Álfaborg. Baðinnréttingar eru í eikarlit og speglaskápar með led ljósum. Blöndunartæki og hreinlætistæki eru frá Grohe.

Athugið, íbúðin er afhent án gólfefna. Gólfefnum og húsgögnum hefur verið bætt á myndir.

Allar upplýsingar um eignina veita: Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali í síma 860-2078 eða kristin@haborg.is, Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822-1661 eða katla@haborg.is og Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is.

Kort af Þjóðbraut 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18
Þjóðbraut 5, 01-0301 | Húsasjá