HÚSASJÁ

Jarpstjörn 4

01-0306 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
36 myndir

120 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2023

Byggingarár

4122 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla



358 dagar á sölu

sell

109.900.000 kr

918.129 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun kynnir:

Jarpstjörn 4  í Reykjavík - Glæsileg og björt fjögurra herbergja íbúð með stórum þaksvölum

Íbúðin er 119,7 fm, þar af 15,9 fm geymsla í fallegu fjölbýlishúsi byggðu árið 2023. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Stærsta aðdráttaraflið er 94,7 fm þaksvalir með fallegu útsýni til norðurs yfir Esjuna og Úlfarsfell. Einnig er til staðar leyfi til að glerloka svalirnar.

✅ Glæsileg íbúð með einstöku útsýni

✅ 94,7 fm þaksvalir með leyfi til glerlokunar

✅ Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja eign

✅ Stæði í lokaðri bílageymslu

✅ Nálægð við ósnortna náttúru

Nánari lýsing

Forstofa: Rúmgóð og björt með góðum fataskáp, harðparket á gólfi.

Alrými: Stofan og borðstofan mynda opið og bjart rými með stórum gluggum sem hleypa góðri birtu inn. Útgengt er á stórar þaksvalir sem bjóða upp á einstaka nýtingu til útiveru. Harðparket á gólfi.

Eldhús: Stílhreint og opið eldhús með fallegri hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Eldhúseyja með helluborði og háf yfir. Innbyggður ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð og tengi fyrir ísskáp.

Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum. Hjónaherbergið er sérlega rúmgott með útgengi á svalir í austurátt.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með hvítri baðinnréttingu, upphengdu salerni, sturtu og handklæðaofni á vegg. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.

Staðsetning

Eignin er staðsett í nýju og fallegu hverfi með nálægð við ósnortna náttúru og gönguleiðir sem gera útivist að daglegum lúxus. Húsið er vandað og glæsilegt með lyftu og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Þetta er einstakt tækifæri fyrir þau sem vilja sameina þægindi og náttúru á einstakan hátt.

Sækja hér söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:

Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is

Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöfSkoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Jarpstjörn 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu