HÚSASJÁ

Áshamar 20

03-0201 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

109 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2024

Byggingarár

10098 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



518 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

779.614 kr/m²

Hraunhamar kynnir: Glæsilega fjögurra herbergja endaíbúð á 2. hæð með svölum í nýju vönduðu lyftuhúsi á frábærum stað í Hamraneshverfinu í Hafnarfirði, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en votrými verða flísalögð. Mögulegt er að kaupa valin gólfefni gegn aukagreiðslu. Afhending við kaupsamning.

Íbúð 201 er fjögurra herbergja, skráð 108,9 fermetrar með geymslu. Auk þess fylgir stæði með í lokaðri bílageymslu.

Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefnum

Ath. myndir eru af sýningaríbúð.

Sjá nánar um íbúðina hér.

Húsið er klætt að utan með álklæðningu, og ál/timbur gluggar.

Nánari lýsing skv. teikningu:

Forstofa.

Gott opið rými, þar sem eldhús og stofa eru samliggjandi.

Eldhús með smekklegri innréttingu frá HTH og vönduðum eldunartækjum.

Björt stofa og borðstofa og þaðan er útgengt á svalir sem snúa til suð-vesturs.

Tvö góð svefnherbergi með fataskápum.

Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum, flísalagt baðherbergi þar inn af með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.

Flísalagt baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu, þar er þvottaaðstaða.

Sér geymsla í sameign.

Sér stæði í bílageymslu.

Áshamar 20 verður byggt eftir ströngum eftirlitsstaðli Svansins.

Sjá frekari upplýsingar um Svansvottun nýbygginga með því að smella hér.

Áshamar 20 er hluti af klasabyggingu þar sem skemmtilegur garður mun tengja húsin saman.

Eykt ehf er byggingaraðili hússins sem er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki með áratuga reynslu.

Kaupandi borgar skipulagsgjald þegar þess verður krafist sem er 0,3 % af væntu brunabótamati eignarinnar.

Bókið skoðun hjá fasteignasölum Hraunhamars:

​​​​​Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali, s. 888-7979, einar@hraunhamar.is

Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is

Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is

Helgi Jón Harðarson, sölustjóri, s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í farabroddi í rúm 40 ár ! – Hraunhamar.is

Kort af Áshamar 20

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð