HÚSASJÁ

Búðavegur 35C

01-0001 · 750 Fáskrúðsfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

157 m²

Stærð

4

Herbergi

10

Svefnherbergi

6

Baðherbergi

1968

Byggingarár

Sérinngangur

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



812 dagar á sölu

sell

75.000.000 kr

277.572 kr/m²

Borgir s. 896-8030 kynna:

Búðaveg 35, Fáskrúðsfirði er í dag fyrirhugað fjölbýli með þremur íbúðum, en er í dag með tveimur íbúðum á efri hæð sem eru á sitt hvoru fastanúmerinu.

Fyrir liggja samþykktar teikningar og byggingarleyfi um breytingar á húsinu þar sem gert er ráð fyrir þremur íbúðum, tveimur á efri hæð og

einni á neðri hæð ásamt geymslum, þvottahúsi og bílskúr, því eru þrjú fastanúmer á eigninni og þær merktar A, B, og C.

Húsnæðið var áður verslunar- og skrifstofuhúsnæði, með iðnaðarhúsnæði á neðri hæð.

Á efri hæðinni eru tvær ca 120 fm 3-4 herbergja íbúðir með þrem svefnherbergjum.

Sér inngangur er í báðar íbúðirnar og gert er ráð fyrir suður svölum út frá stofu í báðum íbúðum, skv. teikningum.

Á neðri hæðinni er verið að útbúa eina 5 herbergja íbúð (skráð 112,5 fm ) með 4 svefnherbergjum og tveim baðherbergjum og gert er ráð fyrir

sólpalli á vesturhlið út frá stofu. Þessari íbúð mun fylgja bílskúr 45,2 fm, svo skráð stærð þeirrar eignar verður samtals 157,7 fm.

Sameiginlegt þvottahús og geymslur verða á neðri hæð.

Húsið er steinsteypt með steinsteyptri þakplötu með uppstóluðum þakhalla.

Húsið stendur á 977 fm. eignarlóð sem er einni lóð upp frá fjörunni.

Góð aðkoma frá Búðavegi og 10 bílastæði við húsið.

Fallegt útsýni yfir fjörðinn frá efri hæð.

Framkvæmdir og breytingar hafa verið í gangi í húsinu í nokkur ár í samræmi við fyrirliggjandi teikningar, sem er ólokið.

Fasteignin selst í einu lagi þar sem frágangi og framkvæmdum er ekki lokið.

Húsið býður upp á ýmsa möguleika og enn svigrúm til ýmissa breytinga, ef menn hafa hug á því.

Önnur íbúðin á efri hæð er í útleigu í dag - leigutekjur.

Seljandi skoðar öll skipti.

Söluyfrlit

Nánari upplýsingar:  Ægir s. 896-8030 eða aegir@borgir.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Kort af Búðavegur 35C

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð