HÚSASJÁ

Úugata 32

01-0101 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
8 myndir

239 m²

Stærð

6

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

411 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



150 dagar á sölu

sell

148.900.000 kr

622.492 kr/m²

Borg fasteignasala kynnir: Nýtt forsteypt endaraðhús á tveimur hæðum við Úugötu 32 í Mosfellsbæ. Fimm rúmgóð herbergi, tvö stór baðherbergi. Eldhús og stofa í stóru alrými með útgengi út á stórar suð-vestur svalir. Sjónvarpsherbergi er skráð á teikningar en nýtist auðveldlega sem fimmta svefnherbergið. Þvottahús og geymsla. Stór bílskúr. Húsið er samtals 239,2 fm og þar af er bílskúrinn um 28 fm.

Húsið verður afhent tilbúið til innréttinga að innan (byggingarstig 3).

Húsið verður fullbúið að utan, álklæðning á bakhlið, timburklæðning að hluta til að framan. Að innan eru allir milliveggir komnir upp. Búið að sparsla og grunna alla veggi eina umferð. Allt rafmagn tengt, allar vatnslagnir og loftræsting. Handir komið á stiga. Bílskúrshurð með sjálfvirkum opnara. Að framan er lóðin fullbúin; búið að helluleggja bílaplan og tyrfa lóðina. Að baka til er búið að leggja grasþökur. Sjóbræðsla er tilbúin til tengingar.

Byggingarstjóri er tilbúinn að vinna áfram með væntanlegum kaupendum.

Upplýsingar veitir Davíð Ólafsson fasteignasali í síma 897-1533 eða david@fastborg.is

Seljandi greiðir heimtaugagjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat.

Kort af Úugata 32

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Úugata 32, 01-0101 | Húsasjá