HÚSASJÁ

Fífutún 8

01-0101 · 700 Egilsstöðum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
8 myndir

490 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2026

Byggingarár

1155 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla



9 dagar á sölu

sell

45.800.000 kr

732.800 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu FÍFUTÚN 8A ÍBÚÐ 101, 700 Egilsstöðum. Ný tveggja herbergja íbúð á neðri hæð í nýju fjölbýlishúsi.

Sér inngangur er í íbúðina. ÍBÚÐ 101 Á NEÐRI HÆÐ. Íbúðin er 62,5 m², þar af geymsla 2,1 m² samkvæmt skráningu HMS.

ÍBÚÐIN VERÐUR TILBÚIN TIL AFHENDINGAR 31. ágúst 2026.

Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, eitt svefnherbergi og baðherbergi.

Í sameign: Sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla.

Nánari lýsing:

Andyri með þreföldum fataskáp.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu út á steypta verönd.

Eldhús með Brúnás innréttingu, helluborð í bekk, ofn og stálvaskur með einnar handar blöndunartækjum.

Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél í innréttingu, framhlið fylgir með, op fyrir ísskáp er 186 cm á hæð.

Svefnherbergi, sexfaldur fataskápur.

Baðherbergi með flísum á gólfi, sturta, vaskinnrétting og speglaskápur, upphengt salerni. Veggir sturtuhorns baðherbergis er flísalagt.

Inn á baðherbergi er pláss fyrir tvær vélar í innréttingu.

Sér geymsla ásamt vagna- og hjólageymslu er á neðri hæð hússins.

EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ FULLBÚINNI SAMKVÆMT SKILALÝSINGU SELJANDA DAGS. 29.1.2026. Flísar verða á anddyri og baðherbergi og parkett á alrými og svefnherbergi. Veggir og loft íbúðarinnar verða máluð í hvítum lit. Reykskynjarar, slökkvitæki og læstur lyfjaskápur fylgja íbúðinni.

Fífutún 8 er sjö íbúða tvílyft hús. Útveggir eru forsteyptir. Gólfplötur eru staðsteyptar. Þak er viðsnúið, halli að niðurföllum er mótaður í steyptri þakplötu, tvöfalt ásoðinn þakpappi, XPS plasteinangrun 240mm í tveimur lögum, fleytidúkur og þakmöl. Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri frá NorDan Ísland ehf.

Lóðin er sameiginleg 1155,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings. Lóðin er leigð til 50 ára frá 23.10.2025, skjal nr. 446-E-001018/2025.

Samkvæmt eignarskiptasamning, 446-E-001257/2025

Íbúð 0101 Fasteignanúmer: F2524666. Fífutún 8A. Birt stærð séreignar er 62,5 m².

Eignin er íbúð á neðri hæð í fjöleignarhúsi. Birt flatarmál íbúðar er 62,5 m². Eigninni fylgir geymsla 0107 birt flatarmál 2,1 m². Eigninni fylgir hlutdeild í lóð, sameign allra og sérafnotaflötur 0101 tilheyrir íbúðinni, sjá nánar á grunnmynd.

Hlutfallstölur eru: 1. Í húsi og lóð 12,59%. 2. Í hita  12,83%.  3. Rafmagn í sameign 14,28%.

Hita og rafmagnskostnaður Hiti: einn hitamælir er fyrir húsið og er hann í rými í sameign merkt inntök/hjól 0111. Hitaveitukostnaður sameignar skiptist jafnt á milli séreigna en hitaveitukostnaður séreigna skiptist eftir upphituðu rúmmáli séreigna. Allar geymslur séreigna eru upphitaðar. Rafmagn: Sér rafmagnsmælar eru fyrir hvern eignarhluta og eru þeir í rými í sameign merkt inntök/hjól 0111. Sér mælir er fyrir sameign 0111 og skiptist rafmagnskostnaður í sameign jafnt á allar eignir.

Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða gilda ef upp kemur misræmi á milli þeirra og annarra gagna.

Allt auglýsingar og kynningarefni t.d. þrívíddar myndir/teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.

Laus búnaður og annað sem kann að vera sýnt á teikningum eða þrívíddar myndum en er ekki talið upp í skilalýsingu fylgir þannig ekki íbúðum.

Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar.

Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.

Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir, kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.

Húsfélag hefur ekki verið stofnað og kemur það í hlut nýrra eigenda að stofna húsfélag vegna sameignar.

ATH! Á FASTEIGNASÖLUNNI STARFA AÐILAR TENGDIR SELJENDUM HÚSSINS.

Áætlað fasteignamat 2026 m.v. bst. B4, mst. 7, er kr. 41.200.000,-

Gjöld er kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi

- 0.8% af fasteignamati, u.þ.b. kr. 329.000,-

- 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða, u.þ.b. kr. 165.000,-

- 1.6% fyrir lögaðila, u.þ.b. kr. 659.000,-

2. Þinglýsingagjald af hverju skjali s.s. kaupsamning, veðskuldabréfi, veðleyfi, afsali o.fl. kr. 3.800,- af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá heimasíður lánastofnanna.

4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.-, með vsk.

5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

BYR fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir leita sér sérfræðiaðstoðar um nánari skoðun um ástand eignar.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Fífutún 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu