Bláargerði 7C
01-0203 · 700 Egilsstöðum



42 dagar á sölu
52.900.000 kr
661.250 kr/m²
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BLÁARGERÐI 7C ÍBÚÐ 203, 700 Egilsstaðir. Þriggja herbergja íbúð á efri hæð í nýlegu fjölbýlishúsi.
Stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum árið 2023, eignin skiptist í íbúð 74.4 m² og geymslu 5.6 m², samtals 80 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag Íbúðar: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Í sameign: Sér geymsla ásamt vagna- og hjólageymslu.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |
Nánari lýsing:
Forstofa, tvöfaldur fataskápur.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er út á svalir 7.4 m² frá alrými.
Eldhús, Brúnás innrétting og eyja, AEG helluborð, ofn í vinnuhæð, stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (fylgir ekki).
Herbergi I hjónaherbergi, fimmfaldur fataskápur.
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi. vaskinnrétting, speglaskápur, salerni og sturta, veggir eru flísalagðir í sturtu.
Þvottahús er inn af baðherbergi, vinnuborð, stálvaskur, pláss fyrir tvær vélar.
Gólfefni: Parket á alrými og herbergjum. Flísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Í sameign á neðri hæð er sér geymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bláargerði 7 er fjöleignarhús á tveimur hæðum með níu íbúðum. Fjórar íbúðir eru á neðri hæð ásamt geymslum, fimm íbúðir eru á efri hæð. Útveggir eru úr forsteyptum einingum frá MVA. Gólfplötur eru staðsteyptar. Þak er hefðbundið uppstólað risþak, með báruklæðningu. Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri frá Scanva. Lóð er fullfrágengin, bílaplan er malbikað, 10 bílastæði eru á lóð þar af eitt fyrir hreyfihamlaða. Sorpgerði er á lóð.
Lóð er sameiginleg 1.239,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings. Lóðarleigusamningur til 50 ára frá 13.desember 2022, skjal nr. 446-E-001252/2022.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
















