HÚSASJÁ

Borgarbraut 33

01-0001 · 310 Borgarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

66 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1959

Byggingarár

927 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla



289 dagar á sölu

sell

39.500.000 kr

594.880 kr/m²

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Borgarbraut 33A, 310 Borgarnes.

Um er að ræða 3ja herbergja íbúð á neðstu hæð í þriggja hæða fjórbýli með sér inngangi. Húsið er mikið endurnýjað með vönduðum hætti. Eignin er 66.4 fm að stærð skv. skráningu HMS.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Nánari lýsing:

Aðkoma að íbúðinni er frá Þorsteinsgötu, gengið er frá bílaplani niður á sólpall.

Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi, breiðan gang sem á eru 2 herbergi og eldhús, þar innaf er stofa og borðstofa.

Anddyri: Flísar á gólfi.

Baðherbergi: Með innréttingu, salerni, og sturtuklefa. Flísar á gólfi og veggjum í sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Eldhús: Ágæt eldhúsinnrétting og nýlegt parket á gólfum, með öllum tækjum, innbyggð uppþvottavél.

Stofa og borðstofa: Parket á gólfum.

Svefnherbergi: Parket á gólfum, fataskápur í hjónaherbergi. Annað herbergið er skráð sem geymsla.

Eftirfarandi endurbætur voru gerðar á eigninni árið 2022-23. Húsið var sprunguviðgert að utan sílað og málað.  Dren var sett meðfram öllu húsinu.  Skólplagnir endurnýjaðar út í götu og settur nýr brunnur. Þak yfir hluta hússins eða yfir íbúð 201 var endurnýjað, bæði sperrur og klæðning.  Allir gluggar og gler í húsinu eru nýjir og allar útidyr sömuleiðis.  Allt rafkerfi hússins var endurnýað sem og ofnar og vatnslagnir.

Góð staðsetning. Stutt í íþróttamannvirki og alla þjónustu sem eru í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:

Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.

Engin umsýsluþóknun.

Kort af Borgarbraut 33

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25