Bugðufljót 15P
01-0115 · 270 Mosfellsbæ



36 dagar á sölu
81.900.000 kr
481.765 kr/m²
Helgafell fasteignasala ehf. og Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna vandað og mjög snyrtilegt 170 fm. endabil í atvinnuhúsnæði við Bugðufljót 15P í Mosfellsbæ, en þar af eru 59,9 fm. samþykkt milliloft. Lofthæð er frá u.þ.b. 5 metrum og upp í tæpa 10 metra þar sem hún er hæst. Húsið er fullfrágengið með malbikaðri lóð og sérmerktum bílastæðum og útisvæði. Stórt athafnasvæði.
ENDILEGA BÓKIÐ SKOÐUN - REYNT ER AÐ SÝNA EIGNINA SAMDÆGURS.
Lýsing eignar:
Innkeyrsluhurð er 4,3 metra há með sjáfvirkri hurðaopnun.
Timburstigi með handriði milli hæða.
Geymslusvæði yfir gangi sem liggur í gegnum húsið.
Húsið er límtréshús frá LímtréVírnet ehf., byggt árið 2023, klætt steinullar-yleiningum sem halda mjög góðum hita á húsinu.
Húsið er byggt á steinsteyptum undirstoðum. Gólf er steinsteypt með epoxý (Vespox EW-V) yfirlagi. Límtré er í burðarvirki veggja og þaks.
Hvítir gluggar og hurðir í útveggjum eru úr plasti.
Bílaplan er malbikað með niðurföllum, olíuskiljum og sorpaðstöðu.
Baðherbergi með sturtu, innréttingu, salerni og ræstivaski.
Aðgengi og lóð:
Við húsið eru alls 48 bílastæði, en þrjú bílastæði tilheyra hverju bili. Auk þess tilheyrir hverju bili sérmerkt svæði út að lóðamörkum, að fráskildri gegnumkeyrslu, ásamt góðu sameiginlegu svæði.
Búið er að gera upp vsk. kvöð sem áhvílandi var á eigninni.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 842 2217 / gunnar@helgafellfasteignasala.is----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna















