HÚSASJÁ

Axlarás 54A

01-0101 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
55 myndir

214 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2025

Byggingarár

308 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



151 dagar á sölu

sell

163.900.000 kr

766.604 kr/m²

Auður Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali og Lind fasteignasala kynna nýtt og vandað endaraðhús á tveimur hæðum með inngangi að ofanverðu við Axlarás 54A í Áslandi Hafnarfirði. Eignin er skráð 213,8 fm og skiptist í forstofu, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, sjónvarpsherbergi og tvær geymslur.

Heimasíðu verkefnisins má finna hér

Byggingaraðili: Þarfaþing hf.

Aðalhönnuður: Arkís arkitektar ehf.

Eignin skilast fullbúin án gólfefna. Gólf í forstofu, baðherbergjum, þvottahúsi og geymslum eru flísalögð. Sjá skilalýsingu hér.

Nánari lýsing:

2.hæð

Forstofa: Rúmgóð forstofa með góðu skápaplássi. Þakgluggi sem veitir fallegri birtu inní rýmið. Skápar eru sérsmíðaðir frá Selós. Úr anddyri er gengið inní geymslu.

Geymsla: Innaf forstofu, flísar á gólfi, tvöföld útihurð. 10,6 fm

Borðstofa/stofa: Rúmgott og bjart alrými. Stórir gluggar sem gefa fallega birtu inní rýmið, hátt til lofts. Loftadúkur með innfeldri lýsingu. Auka lagnaleiðir voru lagðar að öllum gluggum, svo auðvelt sé að snjallvæða húsið.

Eldhús: opið við borðstofu/stofu. Rúmgott eldhús með góðu skápaplássi. Eldhúsinnrétting frá Selós, borðplötur eru 20 mm þykkar út Dekton steini með undirlímdum vaski. Eldhústæki eru frá Ormsson af gerðinni AEG. Innbyggður ísskápur, frystir, uppþvottavél fylgir. Bakaraofn og helluborð með innbyggðum háf. útgengi út á sólpall.

Snyrting: Flísar á gólfi og vegg að hluta. Upphengt salerni. Innrétting frá Selós, matt beige að lit. Borðplata úr Dekton stein.

Herbergi: með fataskáp, 8,7 fm

1.hæð

Sjónvarpshol: 11,4 fm, Inna sjónvarpsholi er geymsla/lagnarými.

Geymsla: 5,6 fm.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og vegg að hluta. Rúmgóð sturta með sturtu gleri ásamt baðkari. Innrétting frá Selós. Borðplötur eru sér smíðaðar úr Dekton stein 20mm þykkar með undirlímdum vaski.

Þvottahús: sér þvottahús. Flísar á gólfi. Innrétting frá Selós, matt beige að lit. Auka sturta í þvottahúsi.

Herbergi: 12,0 fm, fataherbergi 6,0 fm. Útgengi út á sólpall.

Herbergi: með fataskáp. 8,7 fm. Útgengi út á sólpall.

Herbergi: með fataskáp. 10,9 fm.

Lóð: lóðin verður fullfrágengin með burstuðu Lunawood sólpöllum og girðingum. Aðgengi verður hellulagt með snjóbræðslu samkvæmt lagnateikningum. Gróðurbeð verða grófjöfnuð en gróður fylgir ekki. Ídráttur fyrir rafbílahleðslu verður lagður.

*Gólfhiti.

*Flísar frá Ebson ehf

*Loft í alrými eru dúkaloft frá Parka.

*Innréttingarnar eru af vandaðri gerð frá Selós, liturinn á öllum skápafrontum er ljósdrappaður.

*Borðplötur eru úr Dekton stein frá Cosentino/Rein steinsmiðja.

*Innihurðar eru hvítar yfirfelldar í yfirhæð (220cm) af gerðini Dana frá Parka ehf.

*Vélræn loftræsting með varmahjóli. Loftræsi samstæða er staðsett í geymslu.

*Auka lagnaleiðir voru lagðar að öllum gluggum, svo auðvelt sé að snjallvæða húsið.

*Gert er ráð fyrir tengimöguleika fyrir heitan pott á báðum hliðum hússins.

Nánari upplýsingar veitir Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur audur@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Axlarás 54A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55