Sunnusmári 3
01-0307 · 201 Kópavogi



203 dagar á sölu
88.900.000 kr
922.199 kr/m²
Nýtt á skrá!! Sunnusmári 3 - Glæsileg 3ja herb. íbúð á þriðju hæð.
Nýtt á skrá! *** Möguleiki á 25% aðstoð fyrir fyrstu kaupendur með ÞG Sjóð og 20% fyrir aðra en fyrstu kaupendur ***
ÞG Sjóður hjálpar þér að komast inn á fasteignamarkaðinn með því að fjárfesta fyrir allt að 25% af kaupverði eignar. Þú þarft einungis að eiga 10% í eigið fé til þess að geta keypt þér eign og að fá 65-70% lán hjá lánastofnun.
Nánari upplýsingar um ÞG Sjóð: www.tgsjodur.is
LIND Fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega 96,4 fermetra 3ja herbergja íbúð við Sunnusmára 3 í Kópavogi. Íbúðin skiptist í 89,9 fermetra íbúðarrými og 6,5 fermetra geymslu í kjallara. Virkilega gott skipulag þar sem fermetrar nýtast vel. Sérstæði í bílakjallara fylgir íbúð þar sem búið er að leggja grunn fyrir rafhleðslukerfi.
Íbúðin er með nýlegu harðparketi á gólfum og nýlegum gardínum í gluggum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Svalir til suðurs inn í skjólgóðan garð milli Sunnusmára 1-13. Öll eldhústæki fylgja og er kæliskápur með frysti og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.
Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðurs sem verður fullfrágenginn.
Íbúð 307: Er glæsileg 3 herbergja íbúð. Heildarstærð er 96,4 fermetrar og er staðsett á þriðju hæð. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara og 6,5 fermetra geymsla. 6,9 fermetra svalir til suðurs. Afhending er við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með eyju sem er staðsett við stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.
Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla.
ÞG Verk er verktaki hússins og hafa þeir um 30 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína.
BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS
Innréttingar: Í eldhúsi og baðherbergi eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar er á baðherbergi.
Eldhústæki: Íbúðinni fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Bosch. Íbúðin er með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu.
Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturta er með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Damixa. Sér þvottahús er innan íbúðar.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir


















