HÚSASJÁ

Björkurstekkur 28

03-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

112 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

1903 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Þvottahús



320 dagar á sölu

sell

78.900.000 kr

706.356 kr/m²

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu spánýtt, virkilega vandað og flott raðhús við Björkurstekk 28.  Húsið er fullbúið og tilbúið til afhendingar. Staðsetning er í suð-vesturhluta bæjarins í göngufæri frá Stekkjarskóla. Húsið er 111,7 fm, staðsteypt, einangrað og klætt að utan með vandaðri ál utanhússklæðningu og á þaki, sem er einhalla, er soðinn tjörupappi. Steyptir skjólveggir að framan sem og aftanverðu. Innbyggð næturlýsing undir þakkanti.

Nánari lýsing:

Forstofa með góðum fataskáp. Þrjú svefnherbergi með vínilparketi á gólfi, öll með fataskápum. Rúmgott baðherbergi, handklæðaofn, innrétting, speglaskápur og "walk inn" sturta með glervegg. Þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnuhæð. Vönduð elhúsinnrétting, ljúflokur á öllum skúffum og skápum ásamt innbyggðri ledlýsingu sem er undir efri skápum í eldhúsi. Vönduð heimilistæki, ísskápur og uppþvottavél innbyggð í innréttingu. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á sólpall.

Svæðaskiptur gólfhiti með stýringum á veggjum, vínilparket á öllum rýmum. Gluggar eru vandaðir ál/tré. Loftræsting úr baðherbergi, vaskahúsi og elhúsi.   Allar innréttingar og skápar frá HTH. Í loftum er dúkaloft með innfelldri Led lýsingu en dúkurinn skapar góða hljóðvist í íbúðinni. Drenmöl í bílaplani og steypt ruslatunnuskýli.

Virkilega flott raðhús þar sem skipulag, frágangur, efnisval og innréttingar eru til fyrirmyndar.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Kort af Björkurstekkur 28

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð