HÚSASJÁ

Grensásvegur 1F

02-0105 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

85 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2025

Byggingarár

9038 m²

Lóð

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



662 dagar á sölu

sell

80.900.000 kr

957.396 kr/m²

Heimili fasteignasala kynnir til sölu glæsilegar fullbúnar nýjar íbúðir við Grensásveg 1F, margar íbúðinna eru með glæsilegu útsýni.  Fullbúin sýningaríbúð sem hægt er að skoða.

FasteignaBRÚ brúar bilið, með aðeins 10% útborgun getur þú eignast nýja vandaða íbúð á besta stað miðsvæðis í Reykjavík,  sjá nánar HÉR.

Við á Heimili fasteignasölu erum staðsett í næsta húsi (Grensásvegur 3) við þetta glæsilega fjölbýli. Hafið samband og við göngum með ykkur yfir götuna og sýnum samdægurs.

Nánari lýsing íbúðar Grensásveg 1F íbúð 105 - LAUS STRAX

Stórglæsileg og vel skipulögð 2ja herbergja 84,5 fm íbúð á 1. hæð Sér afnotaréttur (pallur) 6,3 fm. Íbúðin er með fallegum gólfsíðum gluggum og hita í gólfum. Komið er inn í anddyri með fataskáp. Stórt og bjart opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa þar eru gólfsíðir gluggar.  Rúmgott bjart eldhús með eyju með spanhelluborði og fallegum háfi, stofa með útgengi á sér 6,3 fm verönd. Stórt hjónaherbergi og inn af því rúmgott fataherberbergi. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting og sturta sem gengið er inní.  þvottahús/búr inn í íbúð með skápum og skolvask. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara, merkt 0034.

Myndir eru úr sambærilegri íbúð

Frekari upplýsingar veita:

Gunnlaugur A. Björnsson, gab@heimili.is, 617-5161

Sigríður Lind Eyglóardóttir, sigridur.lind@heimili.is, 899-4703

Anna Sigurðardóttir, as@heimili.is, 898-2017

Finnbogi Hilmarsson, finnbogi@heimili.is, 895-1098

Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.

Stutt lýsing Grensásvegs 1 A/F:

Húsið er 76 íbúða vandað 7. hæða fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd og með stórum gólfsíðum björtum gluggum.  Þær eru afhentar fullbúnar með parketi, nema votrými sem eru flísalögð.   Í hjólageymslu eru stæði fyrir 400 reiðhjól.  Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá Parka.  Allt parket á gólfum er vandað harðparket. Innfelld LED lýsing í loftum. Gólfhiti er í öllum  íbúðum.

Glæsileg Bosch tæki í öllum íbúðum, spanhelluborð, vandaður ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja ásamt upphengdum háf.  Svartur yfirfelldur eldhúsvaskur með svörtu blöndunartæki frá Hansgrohe. Baðherbergi flísalögð með 60x60 cm flísum frá gólfi til lofts. Innbyggð blöndunartæki í sturtu.

Afhending íbúða við kaupsamning.

Bílakjallari/bílastæði.

Í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum app sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt.  Í fullbúnum bílakjallara eru hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla.

Deilibílar.

Í bílakjallara er aðgengi að bílastæðum þar sem búið er að koma upp ON hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla og möguleiki á deilibílum frá Brimborg fyrir íbúa til daglegra nota.

Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Heimili fasteignasölu, Grensásvegi 3, 530-6500 eða á heimili@heimili.is  Heimasíðu verkefnisins má finna HÉR

Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.

Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Kort af Grensásvegur 1F

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu
Grensásvegur 1F, 02-0105 | Húsasjá