HÚSASJÁ

Maríugata 1

01-0205 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

75 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Baðherbergi

2023

Byggingarár

6061 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Heitur pottur



74 dagar á sölu

sell

78.900.000 kr

1.059.060 kr/m²

Háborg og Jórunn lögg.fasteignasali kynna í einkasölu Maríugötu 1 Garðab., íbúð 205 stór 2ja herbergja endaíbúð, stærð fm 74,5. Íbúðinni fylgir stór afgirtur pallur og svalir sem gengið er út á úr alrými.

Íbúðin er á 2.hæð en gengið beint inn af bílaplani að norðanveðru. Geymsla fylgir íbúðinni á 1.hæð.

Nánari lýsing: Þegar komið er inn í íbúðina er opin forstofa inn í hol. Í forstofu eru góðir fataskápar. Hjónaherbergið er mjög rúmgott og bjart með góðum fataskápum. Baðherbergið er rúmgott og með glugga. Á baði er góð snyrtiaðstaða, sturta gengið beint inni, skápur undir handlaug og spegill fyrir ofan. Einnig er á baði aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhúsið er með góðri innréttingu með dökkum neðri skápum og endar eru dökkir, en hvítir efri skápar. Úr stofu er útgengt út á sérafnotaflötur eftir endilangri íbúðinni. Sérafnotaflöturinn er afgirtur og hellulagður. Möguleiki á heitum potti. Einnig eru 7 fm svalir. Stofan er björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum. Á gólfum er parket fyrir utan baðherbergið sem er flísalagt.

Samgöngur: framkvæmdir eru hafnar að tengingu við flóttamannaleið sem verður opnuð í júní 2026, sem bætir aðgengi fyrir golf áhugamanna að golfvellinum Odda.

Styttir leið á golfvöllinn og tengir Hafnarfjörð líka við Urriðaholtið.

Fasteignamat eignar næsta ár er kr. 70.400.000-

Pantið skoðun, Jórunn lögg.fasteignasali i síma 8458958 eða jorunn@haborg.is. Gætum sýnt samdægurs.

Húsið:

Húsbyggjandi: Breiðahvarf ehf

Aðalhönnuður: Úti inni arkitektar: Baldur Svarvarsson

Verkfræðihönnun: Víðsjá

Raflagnahönnun: Lumex: Helgi Eiríksson

Maríugata 1. Er stórglæsilegt og einstaklega flott hannað 24 ibúða fjölbýlishús á sex hæðum.

* Vandaðar eldhús innréttingar frá JKE innréttingum, hvítur svefnherbergisskápur og eldhúsið með svörtum efri skápum og dökkri viðaráferð.

* Span helluborð og vifta. Blásturbakarasofn allt frá AEG, vifta

* Blöndunartækin eru frá viðurkenndum framleiðanda

* Úti Inni arkitektar sér um alla hönnun á húsi

Húsfélag: Í húsinu er virkt húsfélag með Maríugötu 1-3. Mánaðargjaldið er kr 19.320.-. Engar yfirstandandi eða væntanlegar framkvæmdir á vegum húsfélagsins.

Staðsetning: Húsið er vel staðsett nálægt Urriðaholtsskóla, sem er grunn- og leikskóli hverfisins. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhrauni og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvirkjum.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn lögg.fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is

Kort af Maríugata 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu