HÚSASJÁ

Kumlamýri 10

01-0101 · 225 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

205 m²

Stærð

6

Herbergi

3

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2024

Byggingarár

586 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



523 dagar á sölu

sell

154.900.000 kr

401.295 kr/m²

Magnús Már Lúðvíksson Löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallegt og vel skipulagt 205,0 fm 6 herbergja parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í nýju og spennandi hverfi á Álftanesi.

Verðið miðast við byggingarstig 3, tilbúið til innréttinga

Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum, einangrað að innan og klætt að utan.

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Anddyri, þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, sjónvarpsstofu, stofa/borðstofu, eldhús, bílskúr og þvottahús.

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

// Aukin lofthæð

// Gólfsíðir gluggar

// Innbyggður bílskúr

// Gólfhiti á neðri hæð, ofnakerfi á eftir hæð

// Rúmgott alrými

// Garður snýr vel að sólu

// 3 svefnherbergi + 3 Stofur + 3 Baðherbergi

Frágangur utanhúss

Útveggir: Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með bárujárni og timbri. Útiljós frágengin.

Gluggar: Ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri.

Þak: Þak er klætt með báruáli. Þakrennur og niðurföll eru undir klæðningu.

Svalir: Svalahandrið frágengið en svalalokanir fylgja ekki.

Lóðarfrágangur: Skilað grófjafnaðri við afhendingu. Sérstæði fylgja húsum í samræmi við ákvæði skipulagsskilmála.

Frágangur innanhúss

Gólfefni: Gólf eru frágengin í rétta hæð undir endanlegt slitlag. Húsinu er skilað með flísum á baðherbergi en án allra annara gólfefna.

Veggir: Steyptir útveggir eru sandspartlaðir og grunnaðir að innan. Hlaðnir innveggir eru sandspartlaðir og grunnaðir. Handrið, handlistar og stál tröppur innanhúss ekki innifalinn. Í stiga er efri trappa bráðabirgða, gert er ráð fyrir að endanleg útfærsla verði í samræmi við handrið.

Loft: Steyptum loftum á 1.hæð er skilað sandspartlað og grunnað. Timburlofti á 2.hæð er skilað tilbúnu fyrir loftaþiljur eða annan frágang.

Lagnir: Fráveitulagnir innanhús eru fullgerðar og frágengnar frá niðurföllum og þrifatækjum. Neysluvatnslagnir er tengdar við stofninntak, fullgerðar og frágengnar að tækjum. Gólfhitakerfi eru fullgert og frágengið án hitastýringum. Hitakerfi 2.hæð er skilað frágengið að ofnum.

Rafkerfi: Heimtaug rafmagns er tengd og frágengin. Ídráttarrör fyrir raf- og boðlagnir milli taflna og tengidósa eru fullgerðar. Rafmagnstafla er fullgerð m.t.t vinnuljósa og uppsetts rafbúnaðar. Vinnuljós eru tengd í hverju herbergi. Loftskiptikerfi frá Ventum með stýribúnaði sem er óuppsettur. Baðherbergi: Baðherbergjum eru flísalögð án tækja og sturtuskilrúma.

Byggingaraðili: Atlas Verktakar ehf

Arkitekt: Teikna teiknistofu arkitekta

Raflagna- og lýsingarhönnun: Liska

Lagnahönnun: Verkfræðistofan Vektor ehf

Umhverfið:

Kumlamýri er ný gata á Álftanesi. Hún liggur í suðurátt frá Suðurnesvegi og frá henni kvíslast fimm botnlangar. Við hvern botnalanga standa fjögur parhús með alls átta íbúðareiningum með sameiginlegu götu-og íverusvæði í miðju.

Megin hugmynd deiliskipulagsins fyrir svæðið er að viðhalda, eftir því sem verða má, því búsetulandslagi sem einkennt hefur Álftanes. Því er leitast við að húsin myndi óreglulegar þyrpingar sem umlykja sameiginleg aðkomusvæði í stað þess að þau myndi hefðbundna götumynd. Nýja hverfið liggur þétt að grónu hverfi og er því stutt í alla helstu þjónustu, svo sem skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og golfvöll. Þá er fallegt útivistarsvæði allt um kring.

Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir.

Kaupandi greiðir 0,8% af fasteignamati sem sýslumaður áæltar fyrir kaupsamning.

Kort af Kumlamýri 10

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð