Mýrargata 37
05-0601 · 101 Reykjavík



718 dagar á sölu
149.900.000 kr
932.794 kr/m²
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega og bjarta þakíbúð við Mýrargötu 37 á jaðri Vesturbæjar í 101 Reykjavík. Björt og vel hönnuð íbúð í viðhaldsléttu og vönduðu húsi sem hannað er af Arkþing/Nordic, innanhússhönnun af Sæju og glæsilegur inngarður hannaður af Landslag arkitektum. Birt stærð eignar er 160,7 m², þar af 31,2m2 bílskúr í bílakjallara og 26.4 m2 sérgeymsla. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara.
* Gólfhiti -
* Gólfsíðir gluggar -
* Quartz borðplötur -
* Axis innréttingar -
* Vönduð eldhústæki -
* Tvennar svalir
* Rúmgóður bílskúr
* Stæði í bílageymslu
Nánari lýsing eignar
Forstofa með miklu skápaplássi og til vinstri er sér þvottahús. Á móti taka við fyrri þaksvalir sem snúa til vesturs með fallegu útsýni.
Eldhús og stofa sameinast í opnu alrými þar sem með gólfsíðir gluggar njóta sín í suður. Vandaðar Axis innréttingar, quartz borðplötur frá Granítsmíðjunni og Siemens eldhústækjum. Útgengt er á skjólsælar suðursvalir með útsýni.
Hjónasvíta með miklu skápaplássi á heilum vegg, einnig er sér snyrting og sér sturta.
Svefnherbergi með fataskáp og stórum þakglöggum.
Aðalbaðherbergið með fallegri innréttingu með quartz borðplötu , walk-in sturtu , upphengdu salerni og handklæðaofni.
Stór geymsla með máluðu gólfi
Gólfhiti er í allri íbúðinni ,parket á gólfum, nema á votrýmum sem eru flísalögð.
Allar upplýsingar veita Helga Pálsdóttir í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir

























































