HÚSASJÁ

Hraunbraut 43

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

200 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2023

Byggingarár

1136 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



35 dagar á sölu

sell

109.000.000 kr

543.912 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HRAUNBRAUT 43, Borg Grímsnesi, 805 Selfoss. Fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum tvöföldum bílskúr.

Húsið stendur innst við botnlanga ofarlega í bænum í útjaðri,  Borg í Grímsnesi er fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu.

Í göngufæri er meðal annars, sundlaug, leikskóli og grunnskóli. Smellið hér fyrir staðsetningu. Sjá hér upplýsingar Borg í sveit!

Húsið er timburhús á einni hæð, byggt árið 2023. Húsið skiptist í íbúð 138.2 m² og bílskúr 62.2 m², samtals 200.4 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, hjónasvíta með baðherbergi, tvö herbergi, baðherbergi, gangur, þvottahús og bílskúr.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471-2858 |

Nánari lýsing:

Anddyri, þrefaldur fataskápur, frá anddyri er innangengt í þvottahús og þaðan í bílskúr.

Gangur er inn af anddyri að öðrum rýmum eignarinnar.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þaðan er útgengt út á timburverönd u.þ.b.130 m² með skjólveggjum (vegghengdur skápur í stofu fylgir).

Eldhús, L-laga innrétting og eyja, helluborð í eyju, ofn og ofn/örbygljuofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, búrskápur,

gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt).

Herbergi I, hjónaherbergi, sexfaldur fataskápur, baðherbergi inn af.

Baðherbergi I inn af hjónaherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni, baðkar, gluggi.

Herbergi II, fjórfaldur fataskápur.

Herbergi III, tvöfaldur fataskápur.

Baðherbergi II, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni og sturta, handklæðaofn og gluggi, útgengt út á verönd.

Þvottahús, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, vaskur í innréttingu, rafmagnstafla, gluggi, innangengt í bílskúr.

Bílskúr, Epoxy á gólfi, tvær hurðar með rafrænni opnun, inntak og gólfhitagrind, gönguhurð er á bílskúr á móts við inngang hússins, innangengt í þvottahús.

Gólfefni: Harðparket er á alrými, gangi og herbergjum. Flísar eru á anddyri, baðherbergjum og þvottahúsi

Húsið er upphitað með gólfhitalögn sem er steypt í gólfplötu, Danfoss stýringar á veggjum.

Innbyggð lýsing er í alrými og gangi, dimmerar eru í öllum rýmum.

Hljóðdúkur frá Enso er í öllum rýmum nema bílskúr. Innihurðar með fellilistum frá Birgisson.

Stýringar eru til staðar í hitagrind fyrir heitan pott og hita í plani.

Hraunbraut 43 er timburhús á einni hæð, klætt að utan með liggjandi bárujárni. Aluzink á þaki. Ál/timbur gluggar og hurðar.

Timburverönd u.þ.b.130 m² með skjólveggjum er framan við húsið til suðurs og vesturs meðfram hlið hússins.

Möl er í bílaplani pláss fyrir átta bifreiðar. Náttúrulegur gróður og hleðsla er aftan við húsið.

Lóðin er 1136.3 m²​​​​​​ leigulóð í eigu Grímsnes-og Grafningshrepps

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 252-1398. Hraunbraut 43, Grímsnes-og Grafningshreppur.

Stærð: Einbýli 138.2 m². Bílskúr 62.2 m² Samtals 200.4 m².

Brunabótamat: 114.850.000 kr.

Fasteignamat: 85.750.000 kr.

Byggingarár: 2023.

Byggingarefni: Timbur.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Hraunbraut 43

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu